flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Í kjölfar samþykktar þingsályktunar um landsskipulagsstefnu boðaði umhverfis- og auðlindaráðuneytið þá aðila sem hv. þingmaður nefndi, Skipulagsstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Landgræðsluna, Skógræktina og Bændasamtök Íslands, til fundar um mótun leiðbeininga um flokkun landbúnaðarlands til að nota við skipulagsgerð og aðra stefnumótun um landnýtingu. Þar komu fram mismunandi áherslur um hversu ítarleg flokkun landbúnaðarlands þyrfti að vera, hvaða land hentar vel til ræktunar, hvað er ræktanlegt land og hvað er í raun gott landbúnaðarland. Þannig hefur umræða um ýmis atriði verið að þróast síðustu ár en jafnframt komið fram mismunandi álit á því hversu víðtæk og ítarleg flokkun landbúnaðarlands þyrfti að vera. Einnig hefur fengist verðmæt reynsla af þeirri flokkun á landbúnaðarlandi sem sum sveitarfélög hafa ráðist í, og hv. þingmaður kom líka inn á það.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið átti síðan frumkvæði að því að ráðist var í vinnu við gerð leiðbeininga um flokkun landbúnaðarlands, í samráði við umhverfis- og auðlindaráðuneytið, og þá með vísan til markmiða og ákvæða jarðalaga en jafnframt með vísan til landsskipulagsstefnu. Samkvæmt jarðalögum skal tryggja svo sem kostur er að land sem vel er fallið til búvöruframleiðslu verði varðveitt til slíkra nota.
Leiðbeiningarnar eru unnar af fulltrúum Landbúnaðarháskóla Íslands, Skipulagsstofnunar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur verið til umsagnar á ýmsum stigum vinnunnar. Ég tek sérstaklega fram að Skipulagsstofnun er þarna innan borðs, sem er jú stofnun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að leiðbeiningarnar liggi fyrir í lok árs 2020. Mjög ánægjulegt er að sjá að þessi samvinna sé að skila árangri í takti við það sem fyrirskrifað var í landsskipulagsstefnu.
En hvernig getur stefnumótun um flokkun landbúnaðarlands í skipulagi stutt við stefnumörkun stjórnvalda um landnýtingu og ráðstöfun lands og jarða? Þannig spyr hv. þingmaður. Kerfisbundin og samræmd flokkun landbúnaðarlands er mikilvæg forsenda fyrir skipulagsgerð sveitarfélaga, þar sem ákvarðanir eru teknar um ráðstöfun lands til uppbyggingar og annarrar nýtingar. Með slíkri kortlagningu fæst yfirsýn yfir umfang og staðsetningu þess lands sem telst vera gott ræktunarland og hægt að nýta þær upplýsingar til grundvallar skipulagsákvörðunum um uppbyggingu og landnýtingu.
Í landsskipulagsstefnu 2015–2026 er gert ráð fyrir því að skipulagsákvarðanir „um ráðstöfun lands í dreifbýli til landbúnaðar og annarrar nýtingar“, eins og þar segir, skuli byggja á flokkun landbúnaðarlands. Segir þar að landi sem henti vel til ræktunar verði almennt ekki ráðstafað til annarra nota með óafturkræfum hætti.
Auk flokkunar landbúnaðarlands er mikilvægt að stjórnvöld á landsvísu setji fram skýra stefnu um skipulagsmál, svo sem um varðveislu góðs ræktunarlands, vernd og endurheimt kolefnisríks jarðvegs og skógrækt, til leiðbeiningar fyrir skipulagsákvarðanir sveitarfélaga.
Saman getur kerfisbundin flokkun á landi og skýr stefna stjórnvalda gefið færi á að ákvarðanir í skipulagsáætlunum sveitarfélaga, um landnýtingu í dreifbýli, geti unnið betur og markvissar að markmiðum stjórnvalda, svo sem um líffræðilega fjölbreytni, kolefnishlutleysi, fæðuöryggi, nýsköpun og byggðamál.
Skipulagsáætlanir fela í sér áætlun um markmið og ákvarðanir viðkomandi stjórnvalda um framtíðarnotkun lands. Þar er gerð grein fyrir því að hvers konar framkvæmdum er stefnt og hvernig þær falla að landnotkun á tilteknu svæði. Þannig er rétt að í skipulagsáætlun sé fjallað um kröfur sem kunna að tengjast landnotkun. Þá verður skipulagsáætlun grundvöllur leyfisveitingar vegna þeirrar notkunar sem um ræðir. Skipulagsáætlanir marka því tiltekinn ramma um heimila landnotkun en á grundvelli skipulagsáætlana verða ekki teknar ákvarðanir til að knýja á um þá nýtingu sem heimil er samkvæmt skipulagi. Vísa má til úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 127/2019. Skipulagsáætlanir einar og sér verða því ekki grunnur kröfu um búsetu-, rekstrar- eða nýtingarskyldu lands, jarða eða mannvirkja í dreifbýli en gætu stutt við slíkar kröfur með þeirri stefnu sem þær setja fram, auk þess sem þær marka ramma um heimila landnotkun. Og það er það sem er mikilvægt í þessu samhengi.
Kerfisbundin og samræmd flokkun landbúnaðarlands, þar sem land er flokkað út frá vistgerðum, jarðvegsgerð, halla, landhæð og eftir atvikum fleiri þáttum, gefur skipulagsyfirvöldum betra undirlag til að útfæra skipulag í dreifbýli þannig að hvatt sé til og unnið að endurheimt votlendis og annarra raskaðra vistkerfa, til að svara síðustu spurningu hv. þingmanns. Einnig getur flokkunin auðveldað forgangsröðun aðgerða og samþættingu við aðra landnotkun. Síðast en ekki síst gefur flokkun lands vísbendingu um kolefnisforða í jarðvegi, sem ber þá að varðveita, og hvar megi auka við kolefni í jarðvegi með góðum búskaparháttum, svo sem í steinefnajarðvegi.