151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.

[12:42]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Við ræðum hér ýmislegt varðandi landnotkun og skipulag lands. Umræða um þetta málefni er bæði mikilvæg og tímabær þar sem þetta snertir fjölmörg umræðuefni sem hafa verið hátt á baugi undanfarið eins og skógrækt, frístundabyggðir, vindmyllugarðar, uppkaup á landi, votlendi, uppgræðsla, landbúnaður, matvælaframleiðsla, fæðuöryggi, útþensla byggðar og margt annað.

Ég ætla að ræða aðeins um matvælaframleiðslu okkar. Mikilvægt er að hugsa heildrænt um matvælaframleiðsluna, taka tillit til allra þátta í því sambandi því að undirstaða þeirrar framleiðslu eru heilnæmar náttúruauðlindir; loft, vatn og jarðvegur. Þar skiptir skipulag þeirra náttúruauðlinda sem eru undirstaða frumframleiðslu okkar mestu máli.

Á undanförnum árum hefur mikið verið fjallað um uppkaup einstakra aðila, oft erlendra auðjöfra, á jörðum og jafnvel heilu sveitunum. Þessi uppkaup eru vitaskuld gerð í ýmsum tilgangi sem erfitt er að geta sér til um, allt frá því að njóta einfaldlega næðis eða einveru í íslenskum fjallasölum til þess að ná einhvers konar völdum á einstökum stangveiðisvæðum í óljósum tilgangi um vernd sportveiðisvæða eða í öðrum tilgangi. Þessi uppkaup hafa verið þyrnir í augum margra sem þykir landið vera að ganga úr greipum innlendra aðila.

Í ljósi þeirrar umræðu sem við tökum er það raunhæft áhyggjuefni ef eða þegar stór landsvæði, sem jafnvel eru vel til búskapar fallin, eru með þessu tekin frá þeim venjubundnum landbúnaðarnotum sem hér hafa tíðkast. Möguleikar ungs fólks til stofnunar búrekstrar skerðast sem því nemur, a.m.k. um sinn.

En hver er stefna stjórnvalda um þessi uppkaup á landi? Hún hefur helst komið fram í því aðgerðaleysi sem ríkisstjórnin hefur sýnt þessu málefni því að á þeim þremur árum sem núverandi ríkisstjórn hefur verið við völd hafa engar breytingar verið gerðar í þessum efnum, engar sem neinu máli skipta.