151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.

[12:44]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir að hefja þarfa og tímabæra umræðu. Hér erum við að takast á við mikilvæga þætti í umhverfi okkar, umgengni við náttúruna og nýtingu lands, hvernig við viljum með skipulegum og formlegum hætti gæta hófs og halda í heiðri góðum gildum um sjálfbæra þróun. Þar hendum við á lofti hugtökin efnahagur, samfélag, náttúra sem fléttast einmitt eins og gullinn, rauður þráður inn í skýrslu hinnar mætu, norsku jafnaðarkonu Gro Harlem Brundtland, Sameiginleg framtíð vor, sem kom út árið 1987. Skýrslan var undanfari heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó 1992 og markaði tímamót.

Nokkru fyrr kom fyrst fram þetta hugtak, sjálfbærni. Sjálfbærni er einmitt eitt aðalmálið í tengslum við hugsunina um afleiðingar þeirra ákvarðana sem teknar eru í dag á hag og velferð manna, dýra og náttúru í framtíðinni. Þessi hugmyndafræði fellur því vel að efni hinnar sérstöku umræðu hér á Alþingi í dag.

Nýting lands í dreifbýli er meðal þess sem sveitarstjórnir móta stefnu um, við skipulagsgerð í dreifbýli, svo sem hvaða landi er ráðstafað til landbúnaðarnota sem hefur í aldanna rás verið algengasta fyrirbæri landnytja í dreifbýli.

Það er erfitt að vera spámaður í eigin föðurlandi. En þeir eru til sem spá því að landbúnaðarframleiðsla muni aukast hér á landi í framtíðinni. Því valdi fjölgun ferðamanna á næstu árum og enn fremur fjölgun landsmanna sjálfra. Af þessum ástæðum verði full þörf á hefðbundinni og rótgróinni matvælaframleiðslu. Breyttar neysluvenjur og offramleiðsla, sem við glímum þegar við, gæti þó breytt þessari sviðsmynd talsvert. Þarna eru sannarlega áskoranir fyrir hefðbundinn landbúnað og fyrirsjáanlegt að bændur og greinin í heild þurfi með öflugum og markvissum hætti að takast á við þær.