flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.
Virðulegur forseti. Málshefjandi í þessari umræðu tæpir hér á mjög mikilvægu máli um ræktunarland og skipulag nýtingar þess, flokkun og mögulega nýtingarskyldu. Það má vera framandi hugsun þegar við horfum til gnægðar matar á mörkuðum nálægt okkur og horfum líka til gífurlegra breytinga sem eru að verða á aðferðum og viðhorfum til nýtingar á mun fleiri matvælauppsprettum, ef svo má segja; nýtingu þörunga, nýja ræktunartækni og svo mætti lengi telja. En þetta er ekki svo einfalt að við þurfum ekki að hugsa okkar gang. Gangi svartsýnar spár eftir þurfum við sannarlega á því ræktunarlandi að halda sem við eigum hér á landi. Ræktunarland er auðlindauppspretta sem okkur ber að gæta að. Á því grundvallast einnig eitt af þeim markmiðum sem fleiri og fleiri þjóðir skilgreina nú sem hluta af þjóðaröryggi sínu, þ.e. möguleikinn á að framleiða matvæli, matvælasjálfstæði og yfirráð yfir ræktunarlandi og vatni verður stöðugt þýðingarmeiri.
Ég vil, þegar við fjöllum um skipulagsmál, minna á nýlega útkomna skýrslu OECD um of flókna skipulagsferla og þunglamalegt kerfi. Ekki er að sjá að gagnrýni OECD snerti markvert þau atriði sem hér um ræðir, en ég vil samt minna á að takmörkun á landnotkun getur verið mjög íþyngjandi fyrir þróun, framfarir og sókn til verðmætasköpunar.
Að þessu sögðu vil ég taka undir það að samræming og leiðbeiningar um flokkun ræktunarlands væri mikil framför. Allmörg sveitarfélög hafa þegar tekið flokkun ræktunarlands upp í sínum skipulagsáætlunum. Ég vil til viðbótar hvetja til að horft verði til þess að við ráðstöfun lands til skógræktar eða til endurheimtar votlendis verði unnar leiðbeiningar. Ótrúlega lítill hluti lands á Íslandi er í raun hagkvæmt ræktunarland en víða eru veruleg landsvæði sem gætu vel hentað til kolefnisbindingar í landgræðslu og skógrækt. Það er í mínum huga grundvallaratriði að slík flokkun verði samræmd og skýrar leiðbeiningar verði þar um.
Málshefjandi í umræðunni leiðir hér líka fram umræðu um búsetuskyldu og nýtingarskyldu á landi í skipulagsáætlunum. Um það mætti taka sérstaka umræðu síðar en ég vil meina að með gjörbreyttum viðhorfum til búsetu, gjörbreyttum viðhorfum vegna tækniframfara, (Forseti hringir.) getum við horft á búsetu með allt öðrum hætti en hingað til hefur verið gert.