flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.
Forseti. Eftir um 30 ár verður mannfólkið helmingi fjölmennara en það var fyrir 30 árum og þar sem mannfólkið tekur pláss munum við þurfa að halda áfram að ganga á ósnortna náttúru eins og við höfum gert á undanförnum 30 árum. Skógar á stærð við þrettánfalt flatarmál Íslands hafa horfið á undanförnum 30 árum, það er meira flatarmál en Suður-Afríka sem er níunda stærsta land Afríku.
Við verðum að hafa það í huga að rúmur fjórðungur alls lands í heiminum sem ekki er þakið snjó er notað sem beitiland. Þriðjungur alls ræktarlands er notað til þess að fóðra dýr. Án tækniframfara og betri nýtingar munum við þurfa að nota meira og meira af jörðinni til að framfleyta okkar lífsstíl. Það ætti að vera öllum augljóst að hér er um ákveðið hámark að ræða sem við getum ekki farið fram úr. Við verðum að gera betur. Við verðum að skipuleggja landnýtingu vel og vandlega og hvetja aðrar þjóðir til þess að gera hið sama af því að þetta er hnattrænt vandamál.
Okkar lífsstíll kostar landnotkun annars staðar í heiminum. Þegar við kaupum kaffi úti í búð er ekki ólíklegt að það hafi verið ræktað þar sem áður var frumskógur. Hver kaffipoki sem við kaupum kostar landnotkun einhvers staðar í heiminum, kostar væntanlega ekki landnotkun hjá okkur sjálfum en annars staðar. Fleira fólk, meira kaffi, minni frumskógur. Það er augljóst að það þarf að skipuleggja betur því ósnortin náttúra er undirstaða fjölbreytileika lífsins hér eins og annars staðar í heiminum. Á Íslandi þurfum við að huga að þessu skipulagi, ekki bara á landi, hæstv. ráðherra, heldur einnig í fjörðum og úti á opnu hafi. Það varðar fiskeldi, vindorkuver, þaraakra, sjávarfalla- eða straumvirkjanir og margt fleira. Það eru mörg verkefni í nákvæmlega þessu máli sem við verðum að huga að á næstu árum.