flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.
Herra forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir mjög áhugaverða umræðu sem hún hafði forgöngu um. Ég ætla að tala aðeins um samþættingu á skipulagi matvælakerfa og skipulagi landbúnaðarlands með tilliti til sjálfbærrar þróunar. Í matvælakerfisskipulagi eru m.a. dregin fram einkenni og áhrif ólíkra matvælaframleiðsluaðferða og þau eru síðan borin saman með tilliti til sjálfbærrar þróunar, m.a. til að skoða hvar væri heppilegast að stunda ákveðna tegund búskapar með tilliti til sjálfbærni, þ.e. efnahagslegra, umhverfislegra og félagslegra þátta. Stefna um notkun landbúnaðarlands hlýtur að helgast af slíkri vinnu og síðan landbúnaðarstefnu.
Þá má spyrja: Hver er landbúnaðarstefna okkar hér á landi? Setjum við samasemmerki á milli styrkjakerfis í landbúnaði og landbúnaðarstefnu? Ég efast um að það sé almennt hugmyndin en það er vissulega birtingarmyndin. Það sama gildir um stefnu varðandi landbúnaðarland. Birtingarmyndin finnst í gögnum sem sýna landnotkun og nýtingu lands. Sú birtingarmynd er hreint ekki alltaf falleg.
Síðastliðið vor boðaði landbúnaðarráðherra að mótuð yrði landbúnaðarstefna til framtíðar. Það er spennandi verkefni og brýnt og vonandi ber ráðherra gæfu til að kalla að borðinu þá fjölmörgu aðila sem hafa hagsmuni af því að móta slíka stefnu. Ég spyr hér, og hef virkilegan áhuga á að heyra svarið, hver aðkoma umhverfisráðherra að mótun stefnunnar er. Okkur er tamt að tala um mikilvægi landbúnaðarafurða, það mikilvægi er vissulega óumdeilt og verður um ókomna tíð, en það er jarðvegurinn okkar og gróðurinn sem er hin raunverulega auðlind íslenskrar þjóðar, rétt eins og hafið er auðlindin sem við sem fiskveiðiþjóð nýtum okkur.
Við höfum of lengi „neutraliserað“ slæmt ástand landsins okkar, m.a. vegna ofbeitar, (Forseti hringir.) og við höfum glaðst óhóflega yfir litlum skrefum í betri átt. (Forseti hringir.) Nú er kominn tími til að við hugsum framtíðarstefnu (Forseti hringir.) út frá besta ástandi landsins okkar. Út frá því ástandi (Forseti hringir.) metum við síðan og ákveðum hvernig við viljum nýta landið. (Forseti hringir.) Þau tækifæri eru nefnilega fjölmörg.