151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.

[12:56]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér er m.a. rætt um að skipulag landsvæðis gæti ráðið miklu um landnýtingu. Landið allt hefur verið skipulagsskylt frá árinu 1978 og frá 1997 hefur verið skylt að afmarka landbúnaðarland. Þrátt fyrir það hefur umfang landbúnaðarlands ekki enn verið skilgreint á Íslandi. Það sem vantar kannski upp á er að landbúnaðarlandi hefur ekki verið gerð nægileg skil í aðalskipulagsáætlunum. Þar er settur fram einn flokkur sem landbúnaðarland en ekki eftir mismunandi landbúnaðargreinum, nýtingu og möguleikum. Mismunandi landbúnaður nýtir ólíkt land og áhrifin geta verið mjög svo ólík og haft ólík áhrif á umhverfi og aðra þætti.

Í jarðalögum frá 2004 segir að markmið þeirra sé að stuðla að því að nýtingu lands og réttinda sem því tengjast sé hagað í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi. Markmið laganna er m.a. að stuðla að fjölbreyttum og samkeppnishæfum landbúnaði.

Sveitarfélög fara með skipulagsvaldið. Þeirra ábyrgð er því mikil og mikilvæg. Rétt flokkun lands og almenn skipulagsvinna þarf að styðja við byggð með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi. Einhæf flokkun landbúnaðarlands gæti unnið gegn því markmiði sem segir til um jarðalögum.

Í samþykktri stefnumótandi byggðaáætlun segir að markmið stjórnvalda með áætluninni sé að stuðla að jöfnum tækifærum til atvinnu og sjálfbærri þróun byggða um allt land. Undir því má finna ýmsa þætti sem snúa að flokkun landbúnaðarlands eins og að kannaðir verði kostir smávirkjana, skógrækt verði efld og áhersla lögð á þróun nýtingar skógarafurða og eflingu fullvinnslu landbúnaðarafurða í dreifbýli.

Það er því mikilvægt að flokkun lands sé markvissari með stefnu stjórnvalda að leiðarljósi. Lagning ljósleiðara og bættar samgöngur auka möguleika á fjölbreyttri samsetningu atvinnustarfsemi í dreifbýlinu og skipulag lands ætti að taka tillit til þess.

En þá spyr ég hæstv. ráðherra: Af hverju hafa ekki verið unnar leiðbeiningar til sveitarfélaga um flokkun landbúnaðarlands og hvað tefur?