151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.

[13:00]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Í fyrri ræðu minni ræddi ég aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hvað varðar stórfelld uppkaup á landi en núverandi ríkisstjórn hefur engar breytingar gert í þeim efnum, a.m.k. engar sem einhverju máli skipta. Mikilvægt er að stjórnvöld setji skýra stefnu í þessum efnum og almennt um landnotkun. Það er nefnilega þannig að stefna stjórnvalda varðandi flokkun landbúnaðarlands liggur ekki skýr fyrir. Það er mikilvægt fyrir komandi kynslóðir að nægt land sé til staðar til landbúnaðar og almennt til matvælaframleiðslu.

Herra forseti. Við erum í grunninn matvælaframleiðsluþjóð, ekki aðeins fyrir okkur sjálf heldur erum við í miklum færum með að marka okkur stöðu á fleiri sviðum en bara í fiskveiðum. Við búum hér svo vel að eiga þau auðæfi sem nægt land er, en einnig hreina vatnið, hreina loftið, heita vatnið og síðast en ekki síst heilbrigði búfjárstofna okkar. Það má ætla að nokkuð fyrirséð sé að matvælaframleiðsla þurfi að aukast í heiminum. Þess vegna verðum við að fara varlega. Það er lífsnauðsynlegt fyrir möguleika okkar í framtíðinni að vernda búfjárstofna fyrir framandi sjúkdómum, vernda hreina vatnið fyrir spillingu vegna mengunar sem manninum fylgir. Verum ekki sóðar á því sviði, skjótum styrkari stoðum undir fæðuöryggi okkar sem þjóðar. Verndum mikilvægt land til framtíðarnýtingar á framleiðslu matvæla. Þess vegna fagna ég þessari umræðu. Búum svo um hnúta að landgæði verði aukin, t.d. með skógrækt sem styður við búsæld í sveitum landsins og eykur uppskeru og færir okkur, sem einhvers konar jókervinning, stóraukna bindingu kolefnis til að sporna við loftslagsbreytingum, afurðir, atvinnu og gjaldeyri.