151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.

[13:02]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Forseti. Skipulag í dreifbýli opnar á fjölbreytta nýtingu á landi, hvort sem það heitir ræktun, ferðaþjónusta, frístundabyggð eða útivist, en allt verður þetta að gerast í sátt við náttúru og landslag. Eins og ég gat um í fyrri ræðu minni þá er það á valdi sveitarfélaga að móta stefnu um nýtingu lands í dreifbýli við skipulagsgerð.

Í gildandi landsskipulagsstefnu eru sett fram markmið um fjölbreytta og hagkvæma nýtingu landbúnaðarlands í sátt við umhverfið og lögð áhersla á að landi sem hentar vel til ræktunar verði helst ekki ráðstafað til annarra nota. En hvað er gott ræktarland, hvernig er það skilgreint og að hverju þarf að huga í tengslum við þróun byggðar og skipulags í dreifbýli? Þetta eru að mínu áliti mikilvægar spurningar. Staðan er nefnilega enn sú að ógreinilegt er hvernig landbúnaðarland eða ræktarland er og skuli vera flokkað eftir notkunarmöguleikum, t.d. hvar er besta túnræktarlandið, akuryrkjulandið. Þetta hefur komið fram í máli fleiri hér í dag.

Virðulegi forseti. Vissulega er landið fagurt og frítt. Stór hluti þess hefur lengst af verið nýttur til landbúnaðar, raunar oft óháð raunverulegum landgæðum. Samkvæmt Hagstofu Íslands var nytjað landbúnaðarland, utan afrétta, 15–16% af landinu öllu árið 2010. Áætlað hefur verið að einungis um 6% Íslands séu gott ræktunarland en lítill hluti þess lands er nú þegar ræktaður, eða um 1,6% af landinu öllu. Fjölbreytni í landnotkun er engu síður að aukast og að sama skapi eftirspurn eftir landi til fjölbreyttra landnota. Má í því sambandi nefna áhrif af stóraukinni umferð ferðamanna. Því þarf að reikna með þessum þáttum við skipulags- og áætlanagerð í samvinnu við landeigendur. Leggja verður áherslu á margvíslegar og skýrar skyldur sem hvíla á landeigendum varðandi landnotkun. (Forseti hringir.)

Á þessu sviði kemur til kasta sveitarstjórna að vera vel á verði og tileinka sér framsýni á grundvelli sjálfbærrar þróunar, grænnar framtíðar.