flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.
Virðulegur forseti. Við ræðum um flokkun lands í dreifbýli í skipulagi. Mörgum mun finnast þetta mjög sértæk umræða en ég vil færa fyrir því rök að skipulagsmál séu eitt af okkar allra stærstu umhverfis- og loftslagsmálum, þ.e. hvernig við skipuleggjum landið til framtíðar og á sama tíma mikilvægi þess að skilja eitthvað eftir fyrir framtíðarkynslóðir og skipuleggja ekki allt út í hörgul og ákveða inn í langa framtíð hvernig nýting lands á að vera.
Hér er rætt sérstaklega um landbúnaðarland og landbúnaðarland í dreifbýli. Ég þekki það, hafandi starfað lengi að skipulagsmálum í sveitarfélagi, þótt það sé nú hérna á höfuðborgarsvæðinu, að virði lands er auðvitað meira eftir því hvað er skipulagt á landinu. Almennt er virðið, og þá er ég að meina hið peningalega fjármagn sem fólk getur fengið fyrir það, tiltölulega lítið þegar um landbúnaðarland er að ræða. Gæði landsins geta verið mismunandi til að stunda mismunandi landbúnað. Það er líklega þetta sem við þurfum með einhverjum hætti að vinna með til að tryggja það til langrar framtíðar að hér sé nægilegt landrými til matvælaræktunar og -framleiðslu. Þá held ég að það þurfi að ræða sérstaklega við bændur og bændur eigi að vera okkur svolítið leiðarljós. Ég vil meina að þeir séu einna bestir vörslumenn landsins, hafa sýnt það í gegnum tíðina. Við höfum hingað til verið með sauðfjárbændur og svo eru komnir skógarbændur, við getum talað um kolefnisbændur í dag, ferðaþjónustubændur hér fyrir nokkrum misserum og vonandi verður það svo áfram. Ég vil beina því til hæstv. ráðherra að huga sérstaklega að því sem bændur hafa fram að færa í þessu.
En ég ætla líka að nota tækifærið og benda á eitt mjög mikið misræmi í lagasetningu hjá okkur í lögum um gatnagerðargjald. Það má ekki innheimta gatnagerðargjald í dreifbýli en það skal innheimta það í þéttbýli. Þarna myndast misræmi og ósanngirni (Forseti hringir.) og ég hygg að við í þessum sal þurfum að huga að þessu. Þetta getur líka haft áhrif á virði lands sem svo aftur hefur áhrif á framtíðarskipulag.