151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.

[13:14]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þessa góðu umræðu og taka undir með málshefjanda að skipulag er mjög mikilvægt þegar kemur að landbúnaðarlandi og líkt og ég sagði í upphafi ættu leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands fyrir skipulag að vera tilbúnar nú í lok árs.

Mig langar líka að taka fram að með þessu erum við að leggja ákveðinn grunn að því að taka frá verðmætasta landið sem hentar best fyrir landbúnað. Ég vil líka minna á að við eigum leiðbeiningar fyrir skógrækt í skipulagi og eigum leiðbeiningar fyrir endurheimt votlendis sem skiptir líka miklu máli hérna. Þá vil ég minna á það að mikilvægur hluti af loftslagsaðgerðaáætlun þessarar ríkisstjórnar snýr að landnýtingarmálum, tvöföldun skógræktar, tvöföldun landgræðslu og tíföldun endurheimtar votlendis. Nú er unnið að því að setja landsáætlun um bæði skógrækt og landgræðslu sem mun skipta mjög miklu máli fyrir skipulag sveitarfélaga og tala akkúrat inn í þá umræðu sem við höfum átt hér í dag.

Ég verð að fá að minna hv. þm. Karl Gauta Hjaltason á að breytingar voru gerðar á jarðalögum í sumar þar sem frekari hömlur voru settar á jarðasöfnun og það var gert undir forystu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og því hafa núverandi stjórnvöld gert það sem fyrri stjórnvöld hafa kannski ekki náð að klára áður.

Ég vil líka koma því að hér að í ráðherratíð minni hefur verið unnið ötullega að friðlýsingu landsvæða sem skiptir miklu máli fyrir sjálfbæra þróun til næstu áratuga og er hluti af þessari umræðu og mun skila mikilli framlegð að mínu mati á næstu áratugum, ekki síst fyrir ferðaþjónustu.

Að lokum vil ég vekja athygli á verkefnum sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur haft forystu um og snúa að landbúnaði hérlendis. Það eru verkefnin Loftslagsvænn landbúnaður og Landbúnaður og náttúruvernd. Ég tel að þau verkefni geti orðið mikilvæg forskrift fyrir stuðning við landbúnað í framtíðinni.