tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta atvinnuveganefndar en hann samanstendur af þeim sem hér stendur, Helga Hrafni Gunnarssyni, og hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur.
Fyrsti minni hluti tekur undir álit meiri hlutans að öllu leyti nema því einu að við erum þeirrar skoðunar að hækka beri endurgreiðsluhlutfallið úr 25% í 35%.
Í umsögn STEF, samtaka tónskálda og eigenda flutningsréttar, kom fram að samtökin teldu mikilvægt að hækka þetta hlutfall til að mynda nægilegan hvata fyrir erlenda aðila til að taka upp tónlist hérlendis en slík hækkun myndi enn fremur hvetja innlenda aðila til að nýta úrræðið. Fyrsti minni hluti tekur undir þetta sjónarmið og leggur til að hlutfallið verði hækkað sem fyrr greinir.
Við nefndarstörfin varð nokkur umræða um fjármögnun. Fyrsti minni hluti telur þá auknu fjármuni afskaplega lága miðað við tækifærin sem hækkunin myndi fela í sér, samanber umsögn STEF. Á fundum nefndarinnar kom fram að heildarframlag ríkissjóðs til endurgreiðslu væru 54,5 milljónir á ári miðað við yfirstandandi ár. Sömuleiðis fengum við þær upplýsingar frá ráðuneytinu að ef endurgreiðsluhlutfallið hefði verið 35% þá hefðu það verið 76,3 milljónir. Þetta er sum sé upphæðin deilt með 25 sinnum 35. Flóknari er útreikningurinn ekki. Það þýðir að hækkunin er sem nemur 21,8 millj. kr. á ári sem er með lægri upphæðum sem við sjáum farið með á Alþingi. Þetta er afskaplega lág upphæð miðað við mögulegan ávinning.
Mögulegur ávinningur getur falið það í sér að erlendir aðilar vilji nýta íslenska þjónustu. Með því gætum við hvatt erlenda aðila til að koma með verkefni hingað til Íslands. Ef það markmið næðist ekki myndi hækkunin jafnvel koma til þeirra sem eru alfarið með íslensk verkefni á Íslandi. 1. minni hluti telur einnig að það væri til bóta, jafnvel ef afleiðingarnar yrðu einungis þær, sér í lagi núna í þessu Covid-ástandi þar sem tónlistarmenn og aðrir listamenn hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli, algjöru tekjufalli í mjög mörgum tilfellum. Það hefur verið nokkur umræða um það, eðlilega.
Í þokkabót hefur heildarframlagið ekki enn þá verið nýtt að fullu af aðilum sem bendir til þess að hér sé ekki mikil hætta á því að skyndilega verði eitthvert flóð af umsóknum. Ef eitthvað er þá er ástæða til að auglýsa þetta enn frekar og reyndar hefur verið bent á það í umsögnum að aðilar séu í því. Í það minnsta er upphæðin þess eðlis og endurgreiðslan þess eðlis að 1. minni hluti treystir sér algerlega til að leggja til þessi mögulega auknu útgjöld ríkisins fyrir þann ávinning sem gæti hlotist þar af.
Þá aðeins um það, sem kemur fram í áliti meiri hlutans, að hjá ráðuneytinu sé vinna í gangi varðandi endurskoðun endurgreiðslufyrirkomulags í aðeins víðari skilningi, jafnvel einnig með tilliti til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar. Fyrsti minni hluti telur það ágætt og fagnar því í sjálfu sér en sér enga ástæðu til að bíða. Það er ekki þörf á að fá niðurstöður úr þeirri athugun til að taka þessa ákvörðun hér og nú. Forsendurnar liggja fyrir. Við vitum nákvæmlega hvað við erum að gera. Við vitum hverjar upphæðirnar eru. Við þekkjum áhætturnar. Þær eru til staðar en þær eru þekktar. Að þessu sögðu treystir 1. minni hluti sér algjörlega til að leggja þetta til.
Nú vill svo til að 2. minni hluti er með annað nefndarálit sem verður gert grein fyrir eftir örskamma stund. Þessir tveir minni hlutar leggja hins vegar til sömu efnislegu breytinguna sem er hækkun endurgreiðsluhlutfallsins úr 25% í 35% eins og ég sagði í upphafi. Þá samanstendur 1. minni hluti af þeim sem hér stendur, Helga Hrafni Gunnarssyni, og hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttu en að öðru leyti leggur 1. minni hluti til að málið verði samþykkt.