151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.

202. mál
[13:43]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir að leggja þetta til. Ég tel að málið sé mikilvægt í heild sinni frá ríkisstjórninni og mér finnst það mikilvægt en engu að síður styð ég þá nálgun sem hv. þingmaður kom inn á áðan, að hækka endurgreiðsluhlutfallið og taka undir m.a. þau sjónarmið sem komu frá STEF og ýmsum öðrum varðandi endurgreiðslurnar út af þessu máli og hækka þær upp í 35%.

Af hverju kem ég hingað og fer í andsvar? Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann geti hugsað sér að þetta verði gert tímabundið, til tveggja eða þriggja ára, til að sjá síðan og meta árangurinn af slíkri hækkun.

Síðan er hitt að ég leyni því ekki að það kemur betur og betur í ljós eftir því sem við förum yfir aðgerðir, ekki sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda heldur efnahagsaðgerðir þeirra, að þær hafa ekki í nægilega miklum og ríkum mæli beinst markvisst að einyrkjum, tónlistarfólki, listafólki, veitingabransanum eins og við í rauninni sjáum að þær greinar þurfa á að halda. Þannig að ég vil spyrja hvort hann horfi á þetta sem eina leið til að mæta m.a. því mikla tekjufalli sem tónlistarfólk hefur orðið fyrir. Það er alveg ljóst að þessi leið mun stuðla að því að mínu mati, mun stuðla að því að brúa ákveðið bil, a.m.k. meðan á þessum faraldri stendur. Það verður mjög þungur róður langt fram eftir næsta ári þannig að spurningin er í rauninni um tvennt, hvort hann telji þetta að hluta til leið til að koma til móts við verulegt tekjufall tónlistarfólks, skapa því störf, auka fyrirsjáanleika og minnka óvissu og síðan hitt, hvort hann geti hugsað sér þá leið hugsanlega sem millibil, að við höfum alla vega þetta til tveggja, þriggja ára og það verði síðan metið eftir þann tíma.