151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.

202. mál
[13:46]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta atvinnuvn. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hv. þingmaður spyr hvort ég sjái fyrir mér að mér gæti hugnast að hafa hækkunina tímabundna, úr 25% í 35%. Ég væri ekkert endilega sjálfkrafa á móti því, ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugsað út í það fyrr en nú, en í fljótu bragði sé ég ekki mikla ástæðu til þess vegna þess að aðalrökin, sem eru þau frá STEF að laða að erlenda aðila, myndu duga mér ein og sér. Hvort þetta hefur þau áhrif tel ég að muni koma í ljós mjög fljótlega. Þau rök að ef ekki náist það markmið að laða að erlenda aðila þá nýtist þetta samt sem áður íslensku tónlistarfólki sem er með íslensk verkefni alfarið, eru í fyrsta lagi ákveðin vararök fyrir þessari tillögu. Í öðru lagi hygg ég að á sviði tónlistar og lista almennt sé það að fjármagna slíkt með góðu móti ákveðin áskorun í nútímasamfélagi, ekki síst með tilkomu nýrrar tækni sem hefur hrært í öllum eldri viðskiptamódelum sem fólust mikið til í eintakasölu. Það módel er, leyfi ég mér að segja, dautt eða svo gott sem, þannig að ég tel fullt tilefni til að fara í tilraunir í þeim efnum, burt séð í raun og veru frá Covid-ástandinu sem slíku. Ég hugsa að ég myndi leggja þetta til jafnvel þótt ekki væri fyrir Covid-ástandið og jafnvel þótt ekki væri fyrir aðalrökin, sem eru þau að reyna að laða að erlenda aðila. Hvort tilraunin takist síðan þar þarf tíminn að leiða í ljós.

Ég myndi frekar, ef ég réði þessu alfarið sjálfur, hafa þetta þannig að við myndum kannski endurskoða það eftir einhvern ákveðinn tíma en ég myndi ekki í sjálfu sér leggjast gegn því að hafa þetta tímasett eða hafa þetta tímabundið ef fyrir því væru einhver sérstök rök. En rökin sem ég (Forseti hringir.) nota fyrir því að leggja þetta til fela ekki í sér að það þurfi að tímabinda það.