151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.

202. mál
[13:48]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kaupi algjörlega þá röksemdafærslu og styð hana. Ég held að ef við horfum á endurgreiðslu í kvikmyndum hafi reynslan þar sýnt okkur að hún hefur skilað ómældum verðmætum inn í íslenska kvikmyndagerð fyrir utan að viðhalda þekkingu og þekkingarsköpun í þeirri mikilvægu grein sem kvikmyndalistin er.

Síðan er hitt varðandi STEF. Ég held, og það er kannski annað mál og snertir ekki þetta, að það sé alveg ljóst, og við vitum það, að helstu úthlutanir til tónlistarmanna eru í desember. Hætt er við því að úthlutun verði mun minni núna, m.a. af því að hjá þeim sem greiða stefgjöld, eins og verslunum og veitingahúsum, er tekjufallið orðið gríðarlegt. Við vitum að STEF hefur komið til móts við þá staði, hvort sem það eru minni eða stærri staðir, í þessu erfiða ástandi. Það má ekki leiða til þess að óöryggi tónlistarfólks eða eigenda flutningsréttar á tónlist aukist. Við verðum því að tryggja að STEF hafi svipað svigrúm og það hefur alltaf haft til að greiða út til rétthafa tónlistar eins og það hefur gert venjulega í kringum jólin. Ég sé að hæstv. menntamálaráðherra er hér, ég tel að ríkisstjórnin hefði átt að skoða það hvernig hægt hefði verið að brúa þetta bil tímabundið í samvinnu við STEF þannig að rétthafar og tónlistarfólk sé tryggt með sína tekjuöflun á þessum tíma, því að eins og við vitum er algerlega fordæmalaus tími. Þetta er svipuð hugsun og með virðisaukaskattinn, að ríkið tryggi þetta á ákveðnu tímabili þannig að ekki verði tekjufall hjá fólki og það sé ákveðinn hvati, m.a. fyrir STEF til að tryggja greiðslu til rétthafa tónlistar meðan á þessu stendur.

En þetta var svona aukamál í tengslum við þetta. Ég tel að þetta mál einblíni blessunarlega á það sem við þurfum að gera, sem er að koma til móts við tónlistarfólk. Þessi tillaga hv. þingmanns og hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur kemur til móts við það og ég vil lýsa yfir stuðningi við þennan tillöguflutning.