tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innleggið og vona að meiri umræða verði um þær hugmyndir sem hv. þingmaður var að nefna enda kærkomið að finna einhver módel og aðstöðu sem virkar fyrir listafólk vegna þess að svo margt hefur breyst síðustu áratugina, tvo eða þrjá.
Mér finnst líka að við þurfum að hafa eitt sérstakt í huga þegar kemur að hugverkum og hugverkasköpun almennt, þ.e. hversu vel Ísland er til þess fallið að flytja út hugverk. Þá er sama hvort er átt við tónlist, kvikmyndir, hugbúnað, bókmenntir eða hvaðeina, vegna þess að við, sem afskaplega lítið samfélag í samhengi hins stóra heims, búum við ákveðnar náttúrulegar takmarkanir. Við getum ekki orðið best í heimi í að búa til bíla, geri ég ráð fyrir, eða þotur eða eitthvað því um líkt. Það er mikið til af iðnaði þar sem við eigum ekki möguleika á að komast á heimsmælikvarða. En þegar kemur að hugverkum er ekkert því til fyrirstöðu vegna þess að eina náttúruauðlindin sem þarf er fólkið sjálft og hugvit þess, hugur þess og hjarta. Við höfum sýnt það margoft í gegnum tíðina að íslenskir aðilar geta náð mjög langt á alþjóðavettvangi, listamenn ekki síst, og þannig kynnt land og þjóð og menningu okkar og tungumál og allt það, fyrir utan auðvitað efnahagsáhrif. Það allt saman er að mínu mati það sem vantar inn í stoðir hagkerfisins á Íslandi, sem hafa verið sjávarútvegur, ál og ferðaþjónusta, sem er umræðuefni út af fyrir sig. Við ættum að geta bætt við verulega og bætt stórlega í stuðning og nýtingu á hugverkasköpun í eins víðum skilningi og mögulegt er. Þar liggja sóknarfærin okkar að mínu mati. Þess vegna er um að gera að reyna að ná árangri í þá átt.