tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.
Virðulegi forseti. Við erum að fjalla hér um frumvarp um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist. Þetta mál er í sem allra stystu máli þannig vaxið að gildandi lög gera ráð fyrir 25% endurgreiðslu af endurgræðsluhæfum kostnaði sem fellur til við hljóðritun. Eitt af skilyrðum þess að hljóðritun sé endurgreiðsluhæf er að samanlagður spilunartími hljóðritana sé ekki undir 30 mínútum en með 30 mínútna spilatíma er að vissu leyti vísað til lágmarkstíma þess sem í daglegu tali er nefnt breiðskífa. Í gamla daga var stundum talað um LP-plötu og það kemur líka fram í textanum.
En við lifum á breyttum tímum, herra forseti. Breyttar markaðsaðstæður og rekstrarumhverfi hafa leitt til þess að fjöldi tónlistarmanna hefur kosið að gefa út stök lög eða stundum stuttskífu til að vekja athygli á listsköpun sinni eða nýrri plötu. Í daglegu tali er vísað til skífu sem hljómplötu sem inniheldur fleiri en eitt lag, oft fjögur til sex, en þó innan við hefðbundinn 30 mínútna hljóðritunartíma breiðskífu. Meðallengd dægurlaga, eins og er rakið í greinargerð með frumvarpinu, er styttri en áður, 3 mínútur og 30 sekúndur í stað 4 mínútna fyrir 20 árum. Manni verður nú hugsað til ýmissa laga úr þessum geira sem eru mun lengri. En það var á gömlum og klassískum tímum.
Hér er rakið að almennt sé talið að neysla tónlistar hafi færst yfir á streymisveitur þar sem uppgjör á skiptingu verðmæta fer eftir fjölda spilana. Kjarninn í þessu frumvarpi er sú tillaga að samanlagður spilatími tónlistarhljóðritana miðist við 14 mínútur í stað 30. Með því er komið til móts við þarfir útgefenda og listamanna í kjölfar breyttra markaðsaðstæðna og rekstrarumhverfis. Viðmið endurgreiðsluhæfrar útgáfu yrði þá að lágmarki fjögur lög að meðallengd og hér er gefin formúlan fjórum sinnum 3,5 mínútur.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um umrætt frumvarp til laga um breytingar á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist. Annar meiri hluti atvinnuveganefndar styður framgöngu málsins en getur ekki fallist á að beðið sé með hækkun endurgreiðsluhlutfalls eins og meiri hlutinn leggur upp með.
Í nefndaráliti 2. minni hluta er bent á í þessu samhengi að tónlistariðnaðinn má telja falla undir nýsköpunar- og sprotageira sem mikilvægt er að ýta undir um þessar mundir. Öflugir sprotar getað skapað atvinnutækifæri, tekjur og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Í þessum efnum skiptir einnig miklu að vera í lifandi sambandi við erlenda aðila á sviði tónlistarflutnings og hljóðritunar. Tónlistin er vaxtarsproti sem þegar hefur sýnt kraft og mátt til vaxtar. Annar minni hluti telur ástæðu til að nýta þetta tækifæri, til að ýta undir tónlistarflutning og hljóðritun, enda liggur ekki annað fyrir en að lágar fjárhæðir séu undir af hálfu ríkissjóðs í málinu og hefur raunar komið fram.
Annar minni hluti telur því mikilvægt að komið sé enn frekar til móts við vaxandi atvinnugrein sem er í færum til að skapa verðmæti og vel launuð störf. Þar geti hækkun umrædds endurgreiðsluhlutfalls úr 25% í 35% skipt miklu. Að framangreindu virtu leggur annar minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með breytingartillögu sem lögð er til á sérstöku þingskjali.
Undir þetta nefndarálit ritar sá sem hér stendur, Ólafur Ísleifsson, og hv. þm. Sigurður Páll Jónsson. Þá vil ég að lokum geta þess að við fulltrúar minni hluta flokkanna í hv. atvinnuveganefnd stöndum saman að breytingartillögu við frumvarpið þess efnis að umrætt endurgreiðsluhlutfall hækki í 35%. Undir þá tillögu rita hv. þingmenn Helgi Hrafn Gunnarsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Sigurður Páll Jónsson, auk þess sem hér stendur.
Ég vil leyfa mér að ljúka ræðu minni með því að lýsa von minni um að sú breytingartillaga sem ég hef rakið fái þann stuðning hér á þingi sem hún verðskuldar og menn grípi þetta tækifæri og ýti undir þá merku starfsemi sem á í hlut.