151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til.

206. mál
[14:10]
Horfa

Frsm. velfn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit frá hv. velferðarnefnd um frumvarp til laga um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félagsmálaráðuneytinu sem fóru yfir málið. Umsagnir bárust frá Alþýðusambandi Íslands, Hveragerðisbæ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ný heildarlög um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til. Slík skrá nái yfir nauðsynlegustu heilbrigðis- og öryggisþjónustu við íbúa sveitarfélaga svo að unnt sé að tryggja hana. Í umsögnum um málið kom fram að frumvarpið hefði verið unnið í góðu samráði við helstu hagsmunaaðila og ekki voru gerðar efnislegar athugasemdir. Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta nefndarálit rita hv. þingmenn Helga Vala Helgadóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sara Elísa Þórðardóttir og Vilhjálmur Árnason.

Hef ég þá lokið máli mínu, virðulegi forseti.