151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

niðurskurður fjárframlaga til Landspítala.

[13:44]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Landspítalinn mun að óbreyttu þurfa að skerða þjónustu við sjúklinga vegna hagræðingar á næsta ári í miðjum heimsfaraldri. Það er staðreynd. Þá gildir einu þótt framlög hafi aukist milli ára. Reksturinn hefur einfaldlega verið undirfjármagnaður um árabil og þá safnast upp halli. Nú sjá stjórnendur Landspítalans fram á að þurfa að fresta húsnæðisframkvæmdum, skerða þjónustu kvenlækningadeildar, þétta vaktaskipti lækna og seinka sumarráðningum vegna þess að fjármunir til rekstursins eru of naumt skammtaðir, auk þess að geta ekki unnið á biðlistum sem hafa lengst mikið vegna farsóttarinnar.

Ég veit að hæstv. ráðherra hefur af heilum hug reynt að vinna bug á uppsöfnuðum vanda í heilbrigðiskerfinu og ég fagna þeirri löngu tímabæru uppbyggingu við Hringbraut sem nú á sér stað. En óháð þessu öllu, óháð mistökum, óháð fjársvelti fortíðar og óháð einstaka framfaraskrefum, sem hafa verið stigin á núverandi kjörtímabili, vil ég biðja hæstv. heilbrigðisráðherra um að svara mér alveg skýrt: Er það forsvaranlegt að Landspítalinn sé knúinn til að skerða þjónustu við sjúklinga á tímum heimsfaraldurs? Er virkilega ekki hægt að falla frá kröfum, aðhaldskröfu í fjárlögum og þeirri kröfu að Landspítalinn þurfi að vinna uppsafnaðan halla á næstu þremur árum, og tryggja þannig spítalanum viðunandi rekstrarskilyrði á þessum skrýtnu tímum?