þjónusta sálfræðinga og geðlækna.
Virðulegi forseti. Það er því miður ekki í fyrsta skipti sem hér er farið rangt með um að engir samningar séu í gildi við sjálfstætt starfandi aðila á heilbrigðissviði. Það eru náttúrlega fjöldamargir samningar í gangi, ég held að þeir séu á annað hundrað. Ég hef sjálf staðið fyrir því að gerðir væru samningar, til að mynda við Ljósið sem aldrei höfðu verið gerðir samningar við fyrr en í minni tíð, vegna þess að ég veit að það þarf margar hendur á dekk og ég hef alltaf talað fyrir því.
Varðandi það hvað hv. þingmaður gerir lítið úr þjónustu heilsugæslunnar vil ég benda honum á að á þessu ári hafa 2.600 manns fengið þjónustu geðheilsuteyma heilsugæslunnar, 2.600 manns sem hv. þingmaður telur ekki ástæðu til að nefna í fyrirspurn sinni hér á Alþingi. Þetta fólk er að fá stuðning og hjálp, faglegan stuðning, sálfræðistuðning, stuðning frá geðlæknum og fleiri stéttum sem það fékk ekki áður. Þetta er breyting.
Af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, sem sannarlega fór mótatkvæðalaust í gegnum Alþingi, vil ég segja að ég studdi það mál vegna þess að ég taldi rétt að heilbrigðisráðherra hefði skýra heimild til að semja við sálfræðinga eins og aðrar heilbrigðisstéttir. Það er það sem frumvarpið gekk út á og það sem lagabreytingin frá Alþingi gekk út á. Það snerist ekki um að taka ákvörðun um nákvæmlega hvaða upphæð ætti að ráðstafa í slíkan samning. Ég vil fullvissa hv. þingmann um að það er minn vilji að sá rammi liggi fyrir við afgreiðslu fjárlaga nú í desember.