þjónusta sálfræðinga og geðlækna.
Virðulegur forseti. Einhvern tíma var sagt við mig að það væri óþarfi að berja á dyr sem væru opnar. Það er dálítið það sem mig langar til að segja við hv. þingmann. Við erum sammála um mikilvægi sálfræðiþjónustu. Við erum sammála um að tryggja aðgengi að faglegum stuðningi vegna geðheilbrigðisvanda og að hann sé mikilvægur. Við erum væntanlega sammála um það, ef marka má orð hv. þingmanns hér, að það sé mikilvægt að byggja upp sálfræðiþjónustu í opinbera heilbrigðiskerfinu. Ég skil orð hv. þingmanns þannig þegar hún frábiður sér það að ég telji hana ekki vera nægilega styðjandi að því er varðar uppbyggingu og fjölgun, tvöföldun, á fjölda sálfræðinga í heilsugæslunni og uppbygging nýrra geðheilsuteyma á landsvísu. Ég tel þar með að ég eigi stuðning hv. þingmanns vísan í því. Og jafnframt árétta ég það sem ég hef áður sagt, að ég vil að það liggi fyrir við afgreiðslu fjárlaga nú í desember hversu (Forseti hringir.) há upphæð gengur til sérstakra samninga við sjálfstætt starfandi sálfræðinga.