sóttvarnaaðgerðir í framhaldsskólum.
Virðulegi forseti. Mig langar að ræða við hæstv. heilbrigðisráðherra um skólasókn framhaldsskólanemenda eða bara nemenda almennt. Í sóttvarnaaðgerðunum, sem hafa verið mjög íþyngjandi fyrir fjölmarga hópa, höfum við reynt að gera hvað við getum til þess að bæta það tjón sem verður eða koma með mótvægisaðgerðir, t.d. með lokunarstyrkjum og tekjufallsstyrkjum. Við höfum líka framlengt tekjutengdar atvinnuleysisbætur o.fl. En aldrei mun neitt af þessu koma í veg fyrir tjónið sem verður.
Á sama tíma hefur verið reynt eins og hægt er að hafa sóttvarnaaðgerðirnar sem vægastar gagnvart nemendum við grunnskóla, framhaldsskóla og jafnvel upp í háskóla. Undanfarin tvö skipti sem reglugerðirnar hafa verið uppfærðar hefur sú áhersla stjórnvalda, sóttvarnalæknis og landlæknis komið fram. Landlæknir hefur fylgt því eftir með greinaskrifum um að það sé mikilvægt að skólastarf gangi sinn vanagang og nemendur geti mætt í skóla. Þrátt fyrir þetta hefur ekki tekist að hefja staðnám í framhaldsskólum aftur nema að litlu leyti. Einn skóli sóttist eftir undanþágu til þess að geta starfrækt sig þar sem hann er með einingakerfi og öðruvísi fyrirkomulag. Þeirri undanþágubeiðni var hafnað á grundvelli þess að gæta þyrfti að samræmi og jafnræði milli skóla. En er það eitthvert samræmi og jafnræði milli skóla ef aðeins sumir skólar geta uppfyllt þessar kröfur en aðrir ekki?
Því spyr ég: Af hverju gengur svona hægt að koma framhaldsskólanemendum í skólana, sem er gríðarlega mikilvægt? Þurfa ekki að vera skýrari reglur og meira svigrúm í reglunum svo að skólarnir geti allir setið við sama borð um að hleypa nemendum aftur í skólann?