151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir í framhaldsskólum.

[14:22]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég held að við séum alveg sammála um það, öll sem hér erum, að það er gríðarlega mikilvægt að viðhalda samfellu í menntun og skólastarfi. Það er mikilvægt á öllum skólastigum og við höfum í öllum okkar sóttvarnaaðgerðum lagt mjög mikla áherslu á að börnin og ungmennin hafi sem mesta samfellu og inntak í sínu daglega lífi. Við höfum að sumu leyti gengið lengra en þjóðirnar í kringum okkur í því að vera með óbreytt og óraskað skólastarf, sérstaklega á leik- og grunnskólastigi. Sums staðar hafa skólar verið stopp um margra vikna og mögulega margra mánaða skeið. Ég tek algjörlega undir að það hlýtur að vera forgangsmál og meginmarkmið okkar, ef við erum að horfa til lýðheilsusjónarmiða og geðheilsu, að tryggja staðnám í framhaldsskólanum. Ég hef haft þann háttinn á þegar við erum að taka ákvarðanir um aðgerðir sem lúta að takmörkunum á skólastarfi, sem við höfum þurft að gera og skólarnir hafa þurft að sæta frá því að þessi faraldur nam land, að eiga mjög náið samstarf við menntamálaráðuneytið og menntamálaráðherra að því er varðar þá forgangsröðun sem farið er í á framhalds- og háskólastiginu en ekki síður samstarf við sveitarfélögin að því er varðar leik- og grunnskóla.

Við höfum freistað þess í öllum okkar skrefum að gæta að því að sóttvarnaaðgerðir skerði sem minnst skólastarf. Það er okkar sameiginlega markmið. Ég deili því þessari skoðun með hv. þingmanni og ég vil fullvissa hann um að þegar við förum að horfa til næstu skrefa að því er varðar vormisseri, því að við erum náttúrlega komin dálítið langt núna með haustið, er það meginmarkmið okkar að staðnám (Forseti hringir.) geti átt sér stað eins mikið og hægt er.