sóttvarnaaðgerðir í framhaldsskólum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og áherslurnar af því að ég tel að heilsufarslega hættan af þessari miklu félagslegu einangrun — nemendur missa sjálfsálit unnvörpum, brottfall getur aukist, sérstaklega hjá ungum drengjum, og annað — sé að verða meiri áhætta en Covid-faraldurinn sjálfur, en ég veit að við þurfum að fara í eitthvert millistig þarna. Mér hefur sýnst stjórnvöld leggja áherslu á að hafa staðnám sem virkast en þrátt fyrir tilslakanir og þær áherslur hefur skólunum ekki tekist að opna staðnámið aftur. Ég tel gríðarlega mikilvægt að það gerist sem hraðast og vænti þess að næstu tilslakanir og tilmæli verði þá skýr um það að framhaldsskólarnir (Forseti hringir.) geti hafið staðnám.