151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir í framhaldsskólum.

[14:26]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að það hefur verið nokkuð mismunandi hvernig framhaldsskólunum hefur tekist að bjóða upp á staðnám. Það ræðst að hluta til af mismunandi húsakosti og mismunandi aðstæðum, mismunandi miklu rými, en líka því hvort um er að ræða áfangakerfi eða bekkjakerfi sem setur skólunum töluverðar skorður að því er varðar möguleika á sveigjanleika í skipulagi.

Við höfum haft þann háttinn á að menntamálaráðuneytið hefur í raun og veru falið hverjum skóla fyrir sig að leita leiða til þess að nálgast það markmið að bjóða upp á staðnám eins og hægt er. Ég tek undir áherslur hv. þingmanns og sömuleiðis orð hæstv. menntamálaráðherra sem hafa komið fram, bæði hér í ræðustóli Alþingis og ítrekað í fjölmiðlum, að við leggjum mjög mikla áherslu á virkni og staðnám framhaldsskólanema.