fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Varðandi fyrstu spurninguna: Ef umgengni er engin og það er staðfest, til að mynda með úrskurði sýslumanns eða dómara eða af hálfu barnaverndar, eða ef umgengni er undir eftirliti eða takmörkuð að verulegu leyti, þá má forsjárforeldri sækja um þetta. Þegar við erum að tala um að hafa þessa jöfnu skiptingu, og hafa ákveðna opnun á því, þá er það alltaf línudans að stíga. Rök liggja að baki útfærslum á einstaka undanþágum hvað það snertir, þau liggja fyrir í greinargerð og hægt er að gera betur grein fyrir þeim
Ég náði ekki að svara seinni spurningunni en ég skal koma í andsvar við hv. þingmann, þegar hún flytur ræðu hér á eftir, og svara því.