151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[19:17]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gríðarlega mikilvægt að átta sig á grunninum að þessu kerfi. Þetta er upphaflega vinnumarkaðskerfi. Ástæðan fyrir því að Vinnumálastofnun heldur utan um þetta, og ástæðan fyrir því að vinnumálaráðherra flytur þetta mál upphaflega, er sú að þetta er vinnumarkaðsúrræði, rétt eins og atvinnuleysistryggingar eru vinnumarkaðsúrræði. Upphaflega kemur þetta þannig inn. Hins vegar er alveg ljóst að það eru atriði sem ég myndi gjarnan vilja breyta, og ég held að við hv. þingmaður getum verið sammála um það. Þegar við erum búin með þessa 10 milljarða endurreisn á fæðingarorlofskerfinu er verkefnið ekkert búið; fæðingarstyrkurinn, gólfið, að brúa bilið úr fæðingarorlofi yfir í leikskóla, þetta er ekki búið. En að koma hér upp og segja að 10 milljarða endurreisn á fæðingarorlofskerfinu sé ekki neitt, ég er ekki sammála hv. þingmanni í því.