fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Að tvennu: Í fyrsta lagi rakti ég í upphafi þau orð sem voru látin falla þegar mælt var fyrir þessu máli, þau rök sem þar voru greind varðandi það að binda réttindin hvoru kyni fyrir sig. Þau eiga fullan rétt á sér enn í dag vegna þess að við höfum ekki uppfyllt það sem lagt var upp með þegar lagt var af stað með lögin.
Í öðru lagi vil ég segja að núverandi ríkisstjórn er þegar búin að hækka á þessu kjörtímabili umrædd þök sem hv. þingmaður vitnar til í sinni ræðu og bæði sú lenging sem við erum að ráðast í og hækkun á því þaki kostar ríkissjóð á hverju ári 10 milljarða kr. í aukningu. En er hægt að gera meira? Já, það er sannarlega hægt að gera meira en við höfum bæði stigið skrefið með jákvæða hvata með því að hækka umrædd þök, en við erum líka halda í það grunngildi sem lögin voru byggð á, (Forseti hringir.) vegna þess að við höfum ekki enn þá náð þeim markmiðum sem við ætluðum okkur að ná þegar þau voru sett. Það á líka við um réttindi barnsins. (Forseti hringir.) Þetta snýst um réttindi barnsins, rétt eins og hv. þingmaður kom inn á.