fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir seinna andsvarið. Mér finnst aðeins örla á því að við séum í sama samtali og við vorum í fyrir ári. Þar stóð ég og kvartaði yfir því að fæðingarorlofsfrumvarpið kæmi allt of seint inn í þingið, að við fengjum svo lítinn tíma til að ræða við þá hagsmunaaðila sem málið varðar. Það er ótrúlega dapurlegt að við séum aftur þar, rétt fyrir mánaðamót nóvember – desember, að ströggla í því.
Fyrir ári var mikið rætt um skiptinguna. Það var mikið rætt um rétt þeirra sem á einhvern hátt standa höllum fæti félagslega, að reyna að grípa þau. Það er búið að gera það að einhverju leyti. En maður veltir áfram fyrir sér börnum foreldra sem ekki búa saman, hvernig við náum að grípa þau. Ég kom inn á þessa skyldu, að það eigi að vera einhvers konar staðfestur samningur um umgengni á þessum 24 mánuðum, en kerfið okkar hjá sýslumanni og hjá dómstólunum er bara miklu svifaseinna en það. Þegar því er hafnað að þú fáir umgengnissamning er rétturinn til fæðingarorlofs runninn út á þessum 24 mánuðum.
Þriðji hluturinn sem ég vil benda á, sem við ræddum hér fyrir ári, það er þetta að brúa bilið. Við ræddum það líka fyrir 12 mánuðum og við erum alveg á sama stað. Við erum ekki komin neitt lengra en mér líður svolítið eins og við séum hér í sama samtalinu aftur. En það er allt í lagi. Áfram gakk. Við erum með þetta. (Forseti hringir.) Það hefur ekki verið hætt við tólf mánuðina eins og gerðist síðast og ég bara fagna því.