151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[19:56]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, það er þetta sem ég ræddi hér áðan, ég hef sveiflast mjög í þessari umræðu allri varðandi einmitt frelsi foreldra til að velja það sem er þeim fyrir bestu og stundum það sem er barninu fyrir bestu, það fer ekkert endilega alltaf saman. Stundum hugsa foreldrarnir að það sé hentugra að tekjuhærra foreldrið taki styttra fæðingarorlof, alveg óháð því hvort tekjuhærra foreldrið er með barn á brjósti eða ekki.

Varðandi það að hafa börn á brjósti eru ráðleggingar landlæknis þær að það sé barninu gott að vera eingöngu á brjóstamjólk í sex mánuði ef það er mögulegt og eftir það brjóstamjólk og einhverja fæðu, samkvæmt þeim upplýsingum sem komu fram á samráðsgáttinni og víðar. Ég get bara talað út frá eigin reynslu að þegar barnið er farið að borða fæðu meðfram brjóstagjöf þá hættir brjóstagjöfin nú að vera á þetta allt frá korters fresti eins og er fyrst þegar maður er að reyna að losna við stálmann — þú kannski lokar eyrunum, ég bið hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur að hlusta ekki á reynslusögur núna, þetta er að verða mjög persónulegt (Gripið fram í: Ég skal koma með eina á eftir.) — og yfir í að það séu nokkrir klukkutímar á milli, yfir í það að gefa kannski brjóst á morgnana og svo eftir vinnu eða þá að hitt foreldrið mætir með barnið í vinnuna og maður gefur brjóst. Það er allur gangur á þessu. Hafandi verið með þrjú börn á brjósti þá hefur þetta verið alls konar. Ég bara fagna brjóstagjöf og tel að þetta sé mjög mikilvæg tengslamyndun. Ég tel líka að það sé mjög mikilvægt (Forseti hringir.) að hitt foreldrið fái að njóta þessara tengsla. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt, þegar mögulegt er.