151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[20:01]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar og hvet hana til þess að hlusta aftur á ræðu mína frá því áðan, það er hægt að finna hana á alþingisvefnum. Ég var einmitt að fjalla um í löngu máli mikilvægi þess að við tryggjum jafnan rétt kynja á vinnumarkaði. Þessi lög eru vinnumarkaðsúrræði og þá getum við ekki alveg lokað augunum fyrir þeim þætti frumvarpsins sem snýr að því að tryggja að konur eigi jafnan rétt á vinnumarkaði á við karla. Báðir foreldrar séu með jafnan rétt þannig að það bitni ekki á þeim sem fara í lengra fæðingarorlof, viðkomandi fái ekki t.d. framgang í starfi vegna þess að viðkomandi ætlar að fjölga mannkyninu. (IngS: … geta bara ráðið því sjálf.) Það hefur bitnað harkalega á konum sem hingað til hafa gengið með börnin og munu nú vera í meiri hluta áfram. Það hefur bitnað harkalega á þeim í gegnum tíðina og gerir það áfram í þeim ríkjum þar sem ekkert er hugsað um þetta, að þær fari í fæðingarorlof og að þeir, karlarnir, geri það síður. Þá fá þeir frekar framgang í starfi, þeir fá betur launaða vinnu af því að þeir detta ekki út af vinnumarkaði með ákveðnu millibili o.s.frv. Hv. þingmaður talaði um að það væri barnalegt að leyfa ekki fullorðnu fólki að velja en þá finnst mér líka á vissan hátt barnalegt að horfa fram hjá baráttu kvenna í áratugi fyrir því að vera metnar að verðleikum á vinnumarkaði.