fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof og eins og við mátti búast eru skiptar skoðanir um það. Inn í þetta frumvarp kemur auðvitað númer eitt, tvö og þrjú jafnrétti, jafnrétti launa. Við erum ekki búin að ná því að konur og karlar hafi nákvæmlega sömu laun alls staðar og því miður erum við líka, finnst mér, í hálfgerðri fornöld með þessar uppstillingar á þeim upphæðum sem við setjum inn bæði í það sem varðar fæðingarorlofið og líka fæðingarstyrkinn. Það hæsta sem hægt væri að fá eru 600.000 kr. og eftir skatt skilar það, ef maður slær það inn í reiknivél Vinnumálastofnunar, 351.300 kr. útborguðum. Það er nálægt því sem lágmarkslaun í landinu í dag eru fyrir skatt, lægstu verkamannalaunin.
En það sem slær mig mest í þessu samhengi er þegar maður slær inn einstakling sem er engar tekjur með. Þá kemur upp talan 80.341 kr. Ég segi fyrir mitt leyti: Hver á að lifa á þessu? Þarna er verið að segja við þennan einstakling sem á að fá 80.341 kr.: Þú getur ekki séð um barnið þitt. Hvað á þessi einstaklingur að halda? Hvert er verið að hrekja hann? Hvernig í ósköpunum getum við fundið út þessa upphæð? Þetta er svo smánarleg tala að ég spyr mig: Hver kom með þessa tölu? Hver fann upp þessa tölu? Og hverjum datt í hug að setja hana inn í frumvarp? Við vitum að manneskja með barn á framfæri með 80.000 kr. — maður lifir ekki einu sinni einn á því, kannski í viku. En einstaklingur með barn á að lifa á þessu í allt að tvo mánuði. Ég spyr bara: Hvernig í ósköpunum? Og síðan, ef maður slær inn einstakling sem er með 300.000 kr. í tekjur, það gefur 204.000 kr. Og ef við sláum inn þá sem eru t.d. öryrkjar með 260.000 kr., þá gefur það 183.841 kr. Þetta er gjörsamlega óskiljanlegt fyrirbrigði. Ég mótmæli því að það skuli vera svona tölur í boði, að við skulum ekki vera — hvað á ég að segja, ekki þróaðri eða vitrari en svo. Hvar er réttlætið? Ég næ því ekki. Og þessar tölur sem við erum að setja inn í þetta frumvarp. Að greiðslur í fæðingarorlofi skuli vera frá 600.000 kr., en aldrei lægri en 137.632 kr. Ég myndi segja að þær ættu aldrei að vera lægri en t.d. 300.000, eða 350.000, sem eru lágmarkslaun í landinu. Nei, þá eru þau með 137.632 kr.
Það sló mig svolítið þegar hæstv. ráðherra talaði um að þetta væri vinnumarkaðskerfi eða vinnukerfi. En styrkjakerfið, það hlýtur líka að vera löggjafans að ákveða hvort þetta eru viðunandi mánaðarlaun eða ekki. Og þegar maður horfir á þessar tölur, greiðslur í fæðingarstyrki, þetta eru 85.233 kr., en foreldri í fullu námi getur náð úr 190.749 kr. Við vitum að þetta er allt of lágt. Ég verð að segja, eins og ég hef verið að endurtaka hvað eftir annað, að mér finnst þetta algjörlega út í Hróa hött!
En svo er líka annað í þessu sem við höfum verið að tala um. Gamla kerfið er níu mánuðir, nýja kerfið er sex mánuðir fyrir báða foreldra, alls 12, og annað foreldrið getur gefið einn mánuð eftir, þá skiptist það í fimm og sjö mánuði milli foreldra. Ég hefði viljað sjá metnað strax og haft það bara sex mánuði fyrir hvort foreldri og síðan gæti verið val um fjóra mánuði. Ég tel að konu sem fæðir barn veiti ekkert af því að hafa tíu mánuði ef hún telur sig þurfa á því að halda og vill það. Ég er alveg sannfærður um að konan á að hafa töluvert meira svigrúm en karlinn en þessa tvo mánuði sem gefnir eru núna í þessu frumvarpi, vegna þess að við vitum að það er hún sem gengur í gegnum fæðinguna og hún þarf að vera með barnið á brjósti og þar af leiðandi hvílir ábyrgðin mun meira á henni. Ég held að þarna þurfi að vera meira val, það þarf að gefa val og treysta foreldrunum til þess að velja. Ég treysti foreldrum alveg 100% til að velja og færa á milli. Ég hefði viljað sjá þarna í þessu samhengi að konur fengju sjö mánuði og karlinn fimm Ég hefði viljað gefa meira val þarna. Ég hefði gefið fjögurra mánaða val. Fyrst við erum komin með 12 mánuði þá hefðum við getað verið með fjóra, fjóra, fjóra, til dæmis. Þá er ég alveg sannfærður um að í flestöllum tilfellum hefði meiri hlutinn farið til konunnar, átta mánuðir á móti fjórum. Það hefði verið mun sanngjarnara og ég vona heitt og innilega að niðurstaðan verði sú þegar málið kemur fyrir velferðarnefnd og við förum að skoða það þar. Vonandi verður einhvern veginn hægt að breyta þessari smánarlegu tölu.
En fyrirgefið, ég er gáttaður. Ég var í ræðu út af búsetuskerðingum hjá einstaklingi sem átti að lifa af 80.341 kr. á mánuði. Ég sagði að það væri ekki fátækt, það væri sára-sárafátækt. Ég meina, hver ætlar að framfleyta barninu sínu í sára-sárafátækt? Ég myndi ekki treysta mér til þess og ég efast um að nokkur þarna úti treysti sér til að reyna það á 80.000 kr. á mánuði. Ég furða mig á því að hæstv. félags- og barnamálaráðherra, sem er nú með þann titil, skuli hafa þessa tölu þarna inni. Það er gjörsamlega óskiljanlegt.