fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Nokkrir hv. þingmenn hafa komið inn á það í dag hvað það er mikið fagnaðarefni að það skuli vera lagt fram frumvarp á Alþingi sem fjallar um það að lengja fæðingarorlof í 12 mánuði og foreldraorlofið í fjóra. Þetta eru í rauninni mjög mikil tíðindi og mikið gleðiefni. Í mínum huga er þetta tvennt kannski grundvallaratriðin í því frumvarpi sem við erum að ræða. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli fyrir foreldra, og skiptir ekki síður miklu máli fyrir börn.
Í þeirri umræðu sem hefur farið fram bæði núna og í rauninni einnig sl. haust hefur stór hluti áherslunnar legið í skiptingu þess tíma sem er ætlaður í fæðingarorlof, þ.e. hvar á bilinu frá engri ákveðinni skiptingu og yfir í jafna skiptingu eins og frumvarpið kveður á um, eigum við að vera. Hv. þingmenn hafa í ræðum sínum kallað þetta 0, 12, eða fjórir, fjórir, fjórir eða fimm, fimm, tveir eða sex og sex. Núna erum við í raun að tala um jafna skiptingu en með því svigrúmi sem gefið er geta foreldrar ákveðið sín á milli að skiptingin geti verið fimm og sjö, ef fólk vill. Ég held að þarna sé fengin ágætismillilending, sérstaklega þegar horft er til þess að við erum ekki komin á þann stað í íslensku samfélagi — ég held að við eigum bara að horfast í augu við það, hv. þingmenn — að það sé fullkomið jafnræði á milli karla og kvenna á vinnumarkaði. Þangað erum við ekki komin. Okkur langar að komast þangað, a.m.k. mörg okkar, en við erum ekki þar, ekki enn þá. Á nákvæmlega sama hátt spurði hæstv. ráðherra hér áðan: Er þetta frumvarp fullkomið? Er það upphaf og endir alls í umræðunni um foreldra- og fæðingarorlof á Íslandi? Svarið er auðvitað nei, við erum ekki komin þangað. En þetta er mikilvægt skref.
Nefndin fékk, eins og ég nefndi áðan, ágætistilhlaup í fyrrahaust til að ræða og kannski að hugsa um þetta mál og fara í gegnum umræðuna, ekki bara um skiptinguna heldur önnur atriði í frumvarpinu. Þá var til að mynda töluvert mikið rætt um hvernig ætti að bregðast við réttindum þegar um væri að ræða annaðhvort eitt foreldri eða eitt fjarverandi foreldri.
Hæstv. ráðherra fór yfir það í máli sínu áðan að auðvitað er með frumvarpinu reynt að nálgast þessi sjónarmið. Það kann að vera að eitthvað þurfi að snurfusa það og ég hlakka sannarlega til að taka þátt í því í hv. velferðarnefnd. Það er líka mikilvægt, virðulegi forseti, að það komi fram að á sínum tíma var breytingin á lögunum eins og þau voru þá ákveðin forsenda þess að feður fóru almennt að taka fæðingarorlof á Íslandi. Það var ekki raunin áður þó að í sjálfu sér hefði verið heimild til þess. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref í þá átt að leita jafnréttis. Sú fjármögnun sem þá var tekin upp á fæðingarorlofskerfinu, þ.e. tekið er tryggingagjald af launum allra á íslenskum vinnumarkaði, var mjög mikilvægt skref í þá átt að, við skulum segja ýta samfélaginu í jafnréttisátt.
Það hefur svolítið verið rætt um það, og ég spurði hæstv. ráðherra um það áðan, hvort ekki væri tímabært að setja gólf í lögin, annað gólf en það að skerða jafnvel lægstu laun á vinnumarkaði um 20% og borga þá í raun út 268.000 kr. á mánuði eða þar um bil til þeirra sem hafa lægstu launin. Ég hlakka til að fá þær upplýsingar frá hæstv. ráðherra, eins og hann lofaði mér í andsvari áðan, vegna þess að þetta skiptir verulega miklu máli um það hversu langt er hægt að teygja sig. Það er a.m.k. hægt að hugsa það þannig að það gæti verið næsta skref í þá átt að bæta lögin og bæta þessi réttindi enn frekar því að þetta skiptir verulegu máli. Ég verð að segja það, herra forseti, að ég hef meiri áhyggjur af því sem ég myndi kalla gólfleysið í frumvarpinu en því hvort þakið sé ekki nógu hátt. Ég trúi því að fólk sem hefur ekki úr nema 335.000 kr. eða þar um bil á mánuði að spila eigi mun erfiðara með að taka á sig skerðingu upp á 20% en þeir sem hafa kannski 800.000 kr. eða milljón. Ég held ég verði bara að segja það, herra forseti.
Með þessu frumvarpi, eins og hefur komið fram hér í dag, og ekki bara með því heldur með þeim aðgerðum sem hefur verið farið í á kjörtímabilinu, erum við að taka ákvörðun um að auka greiðslur í fæðingarorlofi um 10 milljarða á kjörtímabilinu. Auðvitað er það ekki fullkomið. En það er býsna stórt skref að tvöfalda greiðslur á einu kjörtímabili til þessa mikilvæga málaflokks. Ég held að við getum öll verið sammála um það.
Sumir kynnu að líta svo á að það að fæðingarorlofslögin eða rétturinn til fæðingarorlofs sé vinnumarkaðsúrræði, eins og kemur fram í 1. gr. laganna og hefur raunar alltaf gert, sé ákveðin skekkja, að þar sé ekki tekið nægilega mikið tillit til þess að við erum í raun að tryggja börnum líka samvistir við foreldra sína. En auðvitað er það síðan 2. gr. laganna sem er meginmarkmið þeirra. Það má svo sem deila um það fram og til baka hvað ætti að vera hvar, en raunveruleikinn er sá að þessu var upprunalega komið á sem vinnumarkaðsúrræði. Ég held að sú umræða, hvort við ættum að fara út úr því kerfi og flytja þetta algerlega yfir í segjum réttindakerfi fyrir börn, sé miklu stærri umræða og flóknari. Ég held að við ættum að halda okkur við það núna að ræða þetta á þeim forsendum að við erum hér með mjög mikilsverða aukningu á þeim tíma sem fólk á vinnumarkaði getur átt samvistir með barni sínu eftir fæðingu og það er meginmálið.
Ég hef eins og fleiri þingmenn áhyggjur af því að við erum samt sem áður ekki enn þá búin að brúa bilið milli loka fæðingarorlofs og þess tíma sem börn eiga að jafnaði möguleika á að komast inn á leikskóla. Ég er kannski búinn að segja um eitthvað annað að það sé næsta verkefni. En auðvitað eru mörg svona atriði næsta verkefni, hvernig við getum haldið áfram að brúa þetta bil. Núna leysa mjög margir foreldrar þetta með því að dreifa fæðingarorlofinu á aðeins lengri tíma. En þá skulum við átta okkur á því, hv. þingmenn, að þá erum við að einskorða það úrræði við þá sem eru með það háar tekjur að þeir geta framfleytt sér á enn þá minni prósentu en 80% af launum á mánuði. Það er mjög mikilvægt að menn átti sig á því.
Síðan er önnur vangavelta og það er foreldraorlofið. Nú hef ég ekki tölur um það hversu almenn taka foreldraorlofs er í landinu. Hún er a.m.k. einhver og það má velta því fyrir sér að skoða það á einhverjum tímapunkti að finna leið til að nota það tæki sem foreldraorlofið getur verið til að brúa þetta bil. Það yrði þá náttúrlega að gerast með því að fjölskyldum yrði tryggð framfærsla í foreldraorlofinu með einhverjum hætti en ég tel mikilvægt a.m.k. að velta þeim möguleika fyrir sér að nota þetta úrræði sem er í lögum.
Að lokum aðeins um það sem hefur verið komið inn á hér í umræðunni, að fæðingarstyrkurinn sé ekki nægilega hár. Ég get svo sem alveg tekið undir það. Við skulum samt ekki gleyma því að til að mynda í tilfelli þeirra sem eru á örorkubótum og hafa allar sínar tekjur þaðan þá skerða ekki bætur almannatrygginga greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða fæðingarstyrki. En á hinn bóginn getur fæðingarstyrkurinn skert bætur almannatrygginga eftir að farið er upp fyrir hið svokallaða frítekjumark sem menn eru með í dag. Ég skil a.m.k. lögin þannig. Ég held að við verðum að fá þetta á hreint í hv. velferðarnefnd vegna þess að þetta er mjög mikilvægt atriði. Við verðum að vera með algjörlega opin augun fyrir því hvort við ætlum að láta þarna komast upp einhvers konar skerðingarkapal, ef svo má að orði komast. Ég er viss um að það er ekki vilji löggjafans og tæplega vilji þingsins að þannig fari.
Virðulegi forseti. Enn og aftur, það er fagnaðarefni að þetta frumvarp skuli vera komið fram. Við erum ekki komin á endastöð í að bæta réttindi barna og foreldra á Íslandi en þetta er gríðarlega mikilvægt skref og því ber að fagna.