fæðingar- og foreldraorlof.
Forseti. Mig langaði til að bæta aðeins við í þessa umræðu um fjármögnunina. Eins og er fer 1,1% af tryggingagjaldinu í Fæðingarorlofssjóð. Það er hlutfall af launum þannig að sá sem er með hærri laun er í rauninni með hærri greiðslu af tryggingagjaldinu í Fæðingarorlofssjóð og má alveg álykta sem svo að viðkomandi sé með því að greiða hærri fæðingarorlofsstyrk þegar þannig ber við. Vandamálið sem við glímum þarna við er þakið. Við höfum reynslu og gögn frá því áður en þakið var eins lágt og það eru núna, hvernig notkun á mánuðum sem voru til umráða var jafnari þá en er núna. Þegar við hugsum um þessa skiptingu þá er hinn hlutinn af vandamálinu þakið. Ef við ætlum að fara í sanngjörnustu áttina, að leyfa foreldrum að skipuleggja þá mánuði, sem barnið hefur í rauninni, eins og hverjum hentar, þá verðum við líka að huga að þakinu. Við getum ekki hunsað það algjörlega að lágt þak þýðir að til þess að ná jafnari notkun þá þurfum við að vera með svona svart/hvíta skiptingu á fæðingarorlofinu. En þá erum við einfaldlega bara að gleyma því að við gætum átt við þakið með þessu hlutfalli í tryggingagjaldi og/eða einhverjum hluta eins og með fæðingarorlofsgjöldum eða einhverju því um líku af launum, sem hluta af tekjuskatti. Fjármögnunin er þegar allt kemur til alls aðalhlutinn af vandamálinu, að sjálfsögðu. En af því að fólk er með mishá laun og er að borga hlutfall af laununum sínum í Fæðingarorlofssjóð þá á það að sjálfsögðu rétt á sama hlutfalli til baka. Sá sem er með hærri laun greiðir meira í Fæðingarorlofssjóð og getur þannig auðveldlega fengið hærri greiðslu til baka. Þetta er ekkert voðalega flókið. Hlutföllin eru þannig.
Það eru nokkur atriði varðandi gögnin eins og þau voru áður þegar þakið var hærra. Efnaðar mæður enduðu á því að taka jafnvel meira hlutfall af fæðingarorlofi. Þrátt fyrir þær aðstæður, ef það voru efnaðar mæður og efnaðir feður, voru þær samt að taka hærra hlutfall, sem er áhugavert út af fyrir sig. En þegar allt kemur til alls þá kemur þetta alltaf niður á tekjulágum mæðrum, það er alltaf vandamálið. Það er kannski hægt að bjarga því og koma til móts við það vandamál í gegnum barnabætur eða eitthvað þess háttar. Það eru til stillingar sem við getum átt við, sem gefa þann sveigjanleika sem vissir foreldrar þurfa jafnvel að hafa, í staðinn fyrir að koma með alls konar undanþáguákvæði þar sem fólk þarf að fara í gegnum alls konar nálaraugu eða reyna að svindla á kerfinu á einhvern hátt, skrá sig ekki í sambúð eða alls konar svoleiðis dót, til þess að reyna að ná því fram sem þeir þurfa. Þarna liggur vandamálið þegar allt kemur til alls.
Mig langaði örstutt að minnast á, í tengslum við þetta, frumvarp mitt og nokkurra annarra flutningsmanna úr þingflokki Pírata um sveigjanleika í fjölda daga í fæðingarorlofi. Eins og er þá verður foreldri, faðir eða móðir, að taka a.m.k. tvær vikur í fæðingarorlof. Þetta er önnur takmörkun sem ég tel vera óþarfa, enda eru rökin fyrir henni að það sé svo erfitt að fylgjast með því. Hvernig væri að fylgjast bara ekki með því? Skiptir það í rauninni einhverju máli þegar við erum hvort eð er að greiða í Fæðingarorlofssjóð, þetta eru ákveðin réttindi sem við erum að afla okkur þegar allt kemur til alls? Af hverju ekki að treysta fólki aðeins meira? Sú breyting sem ég legg til myndi gera það að verkum að foreldrar gætu tekið tvo daga í viku á móti öðrum tveimur dögum í viku eða haft einhverja slíka skiptingu, en þyrftu ekki að vera stöðugt í fæðingarorlofi í tvær vikur að lágmarki. Ég hef alla vega þá sýn að sveigjanleikinn sé lykilatriðið og hitt sé úrlausnarefni hvernig við náum þeim markmiðum, að gefnu því að við séum með sveigjanleika. Ef við gætum unnið að því væri það vel þegið.