151. löggjafarþing — 25. fundur,  25. nóv. 2020.

störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Það eru kunnuglegir litir á viðvörunum Veðurstofunnar í dag, appelsínugul viðvörun víða um land. Á sama tíma erum við í stöðu sem ég satt best að segja trúi varla að við séum komin í, stöðu sem var fullkomlega fyrirsjáanleg og stöðu sem hefði átt að vera löngu búið að bregðast við. Á morgun og á föstudag verðum við í þeirri stöðu að hafa ekki tiltæka björgunarþyrlu hér á landi. Í ofanálag er staðan sú að vegna uppsafnaðrar viðhaldsþarfar verður aðeins ein björgunarþyrla tiltæk, a.m.k. fram að jólum. Þetta á einfaldlega ekki að geta gerst, herra forseti, og mikil er ábyrgð ríkisvaldsins. Það á ekki að geta gerst að kerfið sé ekki til staðar þegar við þurfum á því að halda. Það er ekkert sem réttlætir það að björgunarþyrlur séu ekki tiltækar.

Á síðasta ári fór Landhelgisgæslan í um 280 útköll og tveir þriðju þeirra voru vegna alvarlegra slysa eða veikinda og þriðjungur vegna björgunaraðgerða. Það þýðir að það eru um 63% líkur á útkalli næstu tvo daga. Þetta er ekki ásættanlegt og kallar á heildarumræðu um hvernig við stöndum að almannavörnum í landinu. Við búum í dreifbýlu landi með fjölmörgum fjallvegum. Við búum í landi sem byggir á sjósókn og ef vel ætti að vera ættum við að hafa a.m.k. þrjár þyrlur til taks. Þá verðum við að spyrja okkur hvort eðlilegt sé að allt viðbragðskerfið sé staðsett á höfuðborgarsvæðinu og skoða það vandlega hvort réttast væri að dreifa þyrlunum um landið til að stytta viðbragðstíma þeirra.

Það má kalla það kaldhæðni örlaganna að í kvöld er varað við fyrsta vetrarstorminum. Viðvaranir Veðurstofunnar hafa eflaust vakið ugg í brjósti þeirra fjölmörgu sem lifðu storm eftir storm síðasta vetur og óttast eðlilega það versta. Staðan er einföld, herra forseti. Þetta snýst ekki aðeins um kaup og kjör. Þetta er dauðans alvara. Ráðherra verður að finna lausn á þessu máli, ekki seinna en núna.