151. löggjafarþing — 25. fundur,  25. nóv. 2020.

störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Öll getum við verið sammála um að börnin eru það mikilvægasta í samfélaginu. Því er ánægjulegt að sjá mál frá hæstv. félags- og barnamálaráðherra koma fram sem lúta að málefnum þeirra. Vil ég t.d. nefna íþrótta- og tómstundastyrki fyrir fjölskyldur sem eru í neðri hluta tekjudreifingar. Nú geta foreldrar barna sem búa á heimilum þar sem heildartekjur heimilisins eru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði, á tímabilinu mars til júlí, fengið 45.000 kr. styrk á hvert barn. Við eigum að halda utan um öll börnin okkar. Þetta er afar mikilvægt skref í jafnrétti og forvörnum. Þeir málaflokkar eru nefnilega okkur Framsóknarmönnum mjög hugleiknir.

Hæstv. forseti. Það má segja að gærdagurinn hafi verið gleðidagur í fjölskyldu- og jafnréttismálum því að þá mælti áðurnefndur ráðherra fyrir frumvarpi um fæðingarorlof. Það byggir á frumvarpi Páls Péturssonar frá árinu 2000. Það frumvarp er án efa eitt það framsæknasta sem gert hefur verið í fjölskyldumálum á Íslandi. Sjálfstæður réttur feðra skiptir sköpum í jafnrétti á heimilum. Nú er lagt til að réttur foreldra verði jafn og sjálfstæður. Leitað er leiða til að mæta þörfum barna sem búa ekki við það að hafa tvo foreldra til staðar. Það styrkir stoðir jafnréttis því að þrátt fyrir heimsmet í jafnrétti erum við hvergi nærri komin á ásættanlegan stað. Við skulum ekki halda að okkur sé óhætt að slaka á. Því miður er ekki svo. Við megum hvergi hvika því að jafnrétti er fyrir börnin okkar öll, sama af hvaða kyni þau eru.

Mér finnst orð Páls heitins Péturssonar frá árinu 2000 eiga jafn vel við í dag og þá og vil fá að vitna í þau, með leyfi forseta:

„Ég tel þetta vera stórkostlegt skref í þá átt að samræma fjölskyldulíf og atvinnulíf. Þetta er mikið jafnréttismál og afar fjölskylduvænt mál.“