151. löggjafarþing — 25. fundur,  25. nóv. 2020.

störf þingsins.

[15:19]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi árið 2020 kallar sterkt á okkur að hópur kvenna verður nú fyrir ofbeldi einfaldlega vegna þess að þær eru meira heima við. Heimilið er þessum konum enginn griðastaður heldur hættustaður. Í umræðunni er þetta ofbeldi hins vegar svo samtvinnað Covid-19 að ætla mætti að eftir heimsfaraldurinn muni vandinn einfaldlega hverfa. En ofbeldi inni á heimilum varð vitaskuld ekki til vegna Covid-19 og þess vegna má alls ekki gefa sér að það hætti við það eitt að betri regla komist á vinnu gerandans.

Ég hef miklar áhyggjur af því að hér sé fram komin þung, félagsleg afleiðing af þessu ástandi, afleiðing sem gæti lifað áfram ef ekki verður gripið til aðgerða. Ísland trónir efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti og af því getum við og eigum að vera stolt. En íslenskir heimsmeistarar í jafnrétti hafa samt bara upplifað konu í embætti forseta einu sinni, forsætisráðherra tvisvar. Enn hefur það aldrei gerst að hlutfall kynjanna sé jafnt á þingi. Er það tilviljunin ein sem veldur því eða hefur það með stöðu jafnréttismála að gera? Stjórnvöld ákveðinna ríkja sæta nú færis og ráðast að réttindum kvenna. Það eru kjöraðstæður fyrir hendi til að veikja mannréttindi þegar athyglin er á heimsfaraldri og þungri efnahagskreppu. Nýlegar umræður á Alþingi um þungunarrof voru bakslag. Umræður um aðstæður kvenna sem þurfa að fæða eftir 20 vikna sónar, eftir að sónarinn færir þeim sorgartíðindi, voru grimmar gagnvart þeirri sáru sorg.

Ofbeldi er skýrasta birtingarmyndin sem við sjáum um kynjaójafnrétti í samfélaginu. En þær staðreyndir sem ég nefndi hér áðan, um stöðu kvenna, haldast allar í hendur. Virk jafnréttispólitík er svarið við ofbeldi og lausnin. Jafnrétti hefur jákvæð áhrif á hagkerfið, á lög og rétt og samfélagið allt. (Forseti hringir.) Okkar árangur í jafnréttismálum náðist ekki bara með tímanum. Tíminn leiddi okkur ekki hingað, biðin ekki heldur. Þessum breytingum var náð í gegn með baráttu og við þurfum að halda áfram.