störf þingsins.
Herra forseti. Atvinnuveganefnd hefur verið að fjalla um útflutning á óunnum fiski. Við sendum spurningar til fimm ráðuneyta fyrir tæpu ári og óskuðum eftir því að það yrði skoðað hvaða áhrif þetta hefði á atvinnu hér á landi og efnahag landsins. Útflutningur á óunnum fiski hefur tvöfaldast frá árinu 2017 til 2019 og þar að baki eru gífurleg verðmæti. Ráðuneytin svöruðu þessum spurningum og við erum að fjalla um þau svör í atvinnuveganefnd. Það koma vissulega fram áhyggjur af því sem þarna er á ferðinni og þetta hefur auðvitað mikil áhrif á möguleika lítilla og meðalstórra fyrirtækja til að afla sér hráefnis af fiskmörkuðum. Þetta hefur áhrif á störf í landinu og gjaldeyrissköpun hér innan lands.
Við höldum áfram að fjalla um þessi mál í atvinnuveganefnd og munum fylgja því eftir hvað hægt er að gera til að bregðast við útflutningi á óunnum fiski. Það vekur athygli að komnar eru umboðsskrifstofur hér á höfuðborgarsvæðinu sem gagngert gera út á það að kaupa af fiskmörkuðum og flytja til annarra landa, þar sem fiskvinnsla er jafnvel ríkisstyrkt og laun lægri en hér, og hráefnið stendur innlendum aðilum ekki til boða.
Víða er pottur brotinn og við í atvinnuveganefnd erum sammála um það þvert á flokka að þessi mál þurfi að skoðast miklu betur. Við getum ekki, ég tala nú ekki um við þær aðstæður sem nú eru, þegar við erum að reyna að standa vörð um störf og verðmætasköpun, látið þetta óátalið án þess að bregðast við. Stjórnvöld verða að skoða þetta af fullum alvöruþunga.