störf þingsins.
Herra forseti. Fréttastofa RÚV flutti okkur þær fréttir í morgun að Skotland hefði orðið fyrst landa í heiminum til að samþykkja lög um að túrbindi, túrtappar og aðrar tíðavörur verði jafnan aðgengilegar öllum þeim sem á þurfa að halda. Heilbrigðisyfirvöld og sveitarfélög eiga að sjá til þess að lögunum verði framfylgt. Monica Lennon, þingkona skoska Verkamannaflokksins, hefur barist fyrir þessu lengi og bent á það sem kallað hefur verið tíðafátækt, að fjölmargar skoskar konur hafi ekki efni á að verja að meðaltali 1.500 kr. á mánuði í tíðavörur og samkvæmt könnunum hafi um fjórðungur ungs fólks átt erfitt með að verða sér úti um tíðavörur í Skotlandi til lengri eða skemmri tíma.
Tvær 14 ára íslenskar stúlkur, þær Anna María Allawawi Sonde og Saga María Sæþórsdóttir, sendu efnahags- og viðskiptanefnd umsögn um bandorminn svokallaða, sem tengist fjárlagafrumvarpi næsta árs. Í umsögninni benda þær á hversu gott aðgengi að tíðavörum skiptir miklu máli, sérstaklega fyrir peningalítið ungt fólk; að annaðhvort sé ungu fólki mismunað eftir efnahag foreldra eða sú ósanngjarna krafa gerð til þeirra að eyða þeim litlu peningum sem þau eiga í nauðsynlega vöru, svo sem tíðavörur. Tíðavörur eru jafn mikilvægar og klósettpappír og þess vegna ætti aðgengi að þeim að vera jafn sjálfsagt. Blæðingar gera ekki boð á undan sér og því gríðarlega mikilvægt að hafa tíðavörur til staðar á salernum, ekki síst í skólum og félagsmiðstöðvum þar sem ungt fólk er. Og þær leggja einnig til að skattur verði afnuminn af tíðavörum.
Herra forseti. Tökum Skota okkur til fyrirmyndar í þessum efnum og sjáum til þess að tíðavörur séu aðgengilegar öllum sem á þurfa að halda. Og hlustum líka á þær Önnu Maríu og Sögu Maríu og ákall þeirra um ókeypis aðgengi að tíðavörum.