151. löggjafarþing — 25. fundur,  25. nóv. 2020.

búvörulög.

224. mál
[15:51]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Eins og ég fór vel yfir í ræðu um málið í síðustu viku þá styðjum við í þingflokki Samfylkingarinnar nefndarálitið og málið sem slíkt, enda er hér verið að taka skref í rétta átt og um mikilvægan stuðning við garðyrkjubændur að ræða. Við þurfum að ganga mun lengra og reyna að ná fram fleiri og stærri skrefum í átt að því að byggja upp framleiðslu garðyrkjuafurða á mun stærri skala en við höfum séð hingað til. Til þess þurfum við að ákveða hvernig við ætlum að ná fram öflugri innlendri garðyrkjuframleiðslu og aukinni áframvinnslu í mun meira mæli og við þurfum að jafna dreifikostnað raforku.

Herra forseti. Við þurfum að styðja með markvissari hætti við garðyrkju, grænmetisframleiðslu og nýsköpun í matvælaframleiðslu. Þó að þingflokkur Samfylkingarinnar muni greiða atkvæði með þessu máli þurfum við að taka málið upp aftur í heild og stíga mun stærri og ákveðnari skref í uppbyggingu landbúnaðar á landinu.