sóttvarnalög.
Hæstv. forseti. Ég tel að t.d. ákvarðanir um bann við tiltekinni starfsemi, takmarkanir á landamærum og annað þess háttar sem byggir á reglugerðum, hefðu alveg eins getað komið til umfjöllunar í þinginu áður en þær ákvarðanir voru teknar, í mörgum tilvikum a.m.k., þegar ekki er um það að ræða að menn uppgötvi síðdegis á miðvikudegi að það þurfi að setja slíkar reglur sem taka gildi á hádegi daginn eftir eða eitthvað þess háttar. Það þarf aðeins að skoða þetta út frá því hvaða tími er til stefnu.
Við skoðum hlutina kannski út frá ólíkum sjónarmiðum að þessu leyti. Ég held að margháttaðar ákvarðanir, sem við erum að taka á grundvelli núgildandi sóttvarnalaga, séu þess eðlis að það væri ekkert óheilbrigt og óeðlilegt að þær fengju umræðu í þinginu áður en þær eru teknar. Það er bara mín prinsippafstaða í þessum málum. Hvar línan liggur nákvæmlega veit ég ekki. Auðvitað er ég ekki að tala um í því sambandi að einstakar stjórnvaldsákvarðanir séu bornar undir þingið. Ég er ekki að tala um það. En reglur sem fela í sér takmarkanir á stjórnarskrárbundnum réttindum verða í mínum huga að sæta töluvert góðri og nákvæmri skoðun áður en þær eru teknar upp. Ég hef gert athugasemdir við það að þær heimildir sem hafa verið til staðar í lögum fram að þessu væru í mörgum tilvikum veikar og óljósar þegar kemur til þeirrar beitingar. Ég held, án þess að ég vilji hljóma of neikvæður, að lausnin á því sé ekkert endilega sú að telja bara upp enn þá fleiri mögulegar ráðstafanir. (Forseti hringir.) Ég held að við þurfum líka að skoða hvernig ákvarðanirnar eru teknar.