151. löggjafarþing — 25. fundur,  25. nóv. 2020.

greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.

87. mál
[19:16]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um frumvarp Flokks fólksins um hækkun á bótagreiðslum, sem er ekki bara sjálfsagt mál heldur hreinlega nauðsynlegt, vegna þess að því miður er staðreyndin sú að þegar ríkisstjórn eftir ríkisstjórn setur inn einhverjar svona tölur, þá hækka þær aldrei og þar af leiðandi lækka þær ár frá ári. Mismunurinn sem kom hérna fram, úr 5 milljörðum í 8,7 milljónir, er akkúrat lækkun. Búið er að lækka þetta niður í þessa upphæð. Þannig að þeir sem verða fyrir tjóni eða verða fyrir ofbeldi og eiga þar af leiðandi skaðabótarétt og eiga að fá bætur fá mun minna en þeir eiga rétt á að fá. Og samt er það ekki mikið. Því miður er það bara staðreynd að þetta er úti um allt kerfið. Þetta er nákvæmlega sami leikur alls staðar. Við sjáum þetta í almannatryggingakerfinu. Við sjáum að frítekjumarkið er 100.000 kr. á tekjur hjá öryrkjum en á að vera 200.000 ef rétt væri reiknað. Styrkir. Það er kerfisbundið og viljandi gert að setja inn í lögin bara fasta tölu án þess að nokkur hækkun komi til. Við vitum líka að samkvæmt 69. gr. almannatryggingalaga eiga bætur almannatrygginga að hækka samkvæmt launavísitölu, en til vara á það aldrei að vera lægra en sem nemur neysluvísitölu.

Hérna ætti að gilda nákvæmlega sami hlutur. Þegar launavísitalan er hagkvæm á að miða við hana, en þegar hún er undir verðbólguviðmiðum ætti það að gilda. Eins og upphaflega var t.d. með almannatryggingalögin þar sem það átti að vera tryggt, í samfestingi, með belti og axlabönd, það átti að vera pottþétt að hagkvæmasta útkoman myndi alltaf skila sér, en svo er ekki. Við verðum líka að átta okkur á því að þeir sem lenda í þessu þessum málum — og það er líka svolítið skrýtið að það gildir líka um skaðabótalögin, þar er sami leikurinn leikinn. Þar er það meira að segja ljótara vegna þess að miða á við laun og það er ekki gert. Þannig að það rýrnar ár frá ári. Þar af leiðandi tapa þeir sem lenda í slysunum og tryggingafélögin græða ótæpilega.

Við verðum að átta okkur á því að þeir sem fá líka þessar bætur geta verið börn og unglingar, konur, menn, og heilsan fer, andleg og/eða líkamleg heilsa, vinnan fer. Þeir sem fara mjög illa út úr þessu — áttum okkur á því að hámarksmiskabæturnar sem þarna eru, 8,7 millj. kr., eru smáaurar. Hvað þá lægstu bæturnar, sem eru einhverjar 250.000 kr. en ættu að vera 435.000 kr. Í fæstum tilfellum eru þetta neinar risabætur, en það er þá alla vega skárra að þær fylgi launavísitölu og séu nokkurn veginn réttar miðað við upphaflegar fjárhæðir. Ég ætla ekki að hafa mikið fleiri orð um þetta en það má segja að ríkisstjórnin geri okkur þann óleik að segja: Ríkisstjórnin og ríkissjóður fyrst, síðan fólkið. En við segjum: Fólkið fyrst og svo allt hitt. Það fer ekki á milli mála að við erum með forgangsröðunina á hreinu.