151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

kostnaður vegna losunarheimilda.

[10:37]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Eins og fram kom í máli mínu þá á ég von á því að þetta skýrist á næstunni og fyrir áramót, því að eins og hv. þingmaður bendir réttilega á þá rennur þessi frestur út um áramót. Það er hins vegar ekki svo að við séum óviljug að greiða einhverjar sektir sem einhver annar hafi ákveðið heldur snýst þetta um það að við ákváðum að verða þátttakendur í þessu fyrirkomulagi sem snýst um að ríki heims axli skuldbindingar sínar og hafi efnahagslega hvata til að draga úr losun. Þannig að þetta snýst ekki um einhverjar sektir sem detta af himnum ofan til okkar saklausra Íslendinga heldur erum við búin að ákveða að vera með og hv. þingmaður hefur stutt það. Við munum hins vegar gera það með eins hagkvæmum hætti og unnt er. Þessar fréttir hafa verið nokkuð á reiki, ég viðurkenni það, en þetta mun skýrast á næstunni og ég vænti þess að umhverfisráðherra muni gera tillögu um það hvernig við gerum þetta upp og sá aðili sem hv. þingmaður vitnar til, Halldór Þorgeirsson, hefur auðvitað gegnt trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld á þessu sviði og hefur verið okkur gríðarlega mikilvægur ráðgjafi einmitt í þessum málaflokki. (Forseti hringir.) Þannig að hv. þingmaður þarf ekki að hafa áhyggjur, við munum gera þetta upp, standa við skuldbindingar okkar og gera það með eins hagkvæmum hætti og unnt er.