151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

efnahagsaðgerðir og atvinnuleysi.

[10:39]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Viðreisn hefur frá upphafi faraldursins lagt mikla áherslu á að settar verði fram sviðsmyndir, fyrirsjáanleiki aukinn og fleira. Við höfum líka lagt áherslu á að tekin verði stór skref strax, að samhliða sóttvarnaaðgerðum, sem má gagnrýna en við höfum stutt, verði farið í öflugar efnahagsaðgerðir, tímabundnar aðgerðir sem beinast að því að taka utan um fólkið sem misst hefur vinnu í listageiranum, í ferðaþjónustunni, í veitingabransanum og síðan hitt, að styðja fólk í fyrirtækjum í þessum greinum, sem og fólkið sem orðið hefur atvinnulaust.

Þegar við horfum á þetta sjáum við að Ísland er eina þjóðin sem orðið hefur fyrir gengishruni, og það verulegu gengishruni, vegna krónunnar. Við erum eina þjóðin í Evrópu sem hefur upplifað verðbólgu á krepputímum. Síðan er helsta haldreipi þeirra sem slá skjaldborg um krónuna og verja hana með kjafti og klóm, að það verði alltaf minna atvinnuleysi á Íslandi út af íslensku krónunni. Og viti menn, þegar við horfum til Þýskalands er það innan við 5% — 5% atvinnuleysi. Við erum að fara upp í 12% atvinnuleysi hér á Íslandi. Röksemdafærslan varðandi krónuna er því fallin um sjálfa sig.

En það er hins vegar athugunarefni að þegar aðgerðir í Þýskalandi eru skoðaðar, þeir aðgerðapakkar sem verið er að kynna núna, þá erum við Íslendingar tveimur til þremur aðgerðapökkum á eftir öðrum þjóðum. Þá spyr ég: Getur verið að þessi mikli munur m.a. í atvinnuleysi sé vegna þess að við tökum ekki nægilega stór skref, að efnahagsaðgerðirnar séu ekki í nægilega miklu samhengi og samræmi við sóttvarnaaðgerðir? Samtök atvinnulífsins vilja eyða óvissunni sem fyrst, og ég fagna því. Þau hafa sett fram skilyrði varðandi sóttvarnaaðgerðir, skýra tímasetta áætlun um afléttingu takmarkana, eitthvað sem er mjög kunnuglegt, töluleg viðmið þar sem frekari hömlur eða aflétting þeirra er tengd við nýgengi smits, allt mjög eðlileg sjónarmið.

Ég vil spyrja hæstv. ferðamálaráðherra að því hvort hún taki undir þessi sjónarmið Samtaka atvinnulífsins og hvernig hún muni beita sér fyrir því innan ríkisstjórnarinnar að nákvæmlega þetta verði gert, að eyða óvissu sem allra fyrst.