efnahagsaðgerðir og atvinnuleysi.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Þetta verkefni hefur auðvitað verið langt og strangt. Þegar við fórum af stað og tókum það í fangið, eins og aðrar þjóðir, og smíðuðum úrræði vorum við að vona að það yrði um nokkurra mánaða skeið en ekki allt að heilu ári og jafnvel lengur. Við höfum vegna þess komið með ný úrræði, slípað til skilyrði í fyrri úrræðum og ávallt verið með augun á þeim bolta, tilbúin að horfa á stöðuna eins og hún er og bregðast við. Mér finnst við heilt yfir hafa gert það nokkuð vel. Við höfum farið í mjög stórar aðgerðir sem hafa haft hér pólitískan stuðning, bæði til að koma fyrirtækjum til bjargar, til að hjálpa þeim að komast yfir þetta tímabil, en líka með því að fjárfesta enn frekar og spýta í í ákveðnum kerfum sem við trúum á og þar sem við viljum sækja sérstaklega fram, hvort sem það er í þágu nýsköpunar eða frekari fjárfestingarverkefni í samgönguframkvæmdum og öðrum verkefnum.
Auðvitað hefur legið fyrir í töluverðan tíma að þessi staða kallar á nýja nálgun á það hvernig við keyrum atvinnulífið af stað, hvernig við öll berum okkur að í þessu samfélagi hér, eins og annars staðar. Fréttir af bóluefni hafa vissulega breytt þeirri stöðu. Í fyrsta sinn í langan tíma leyfi ég mér raunverulega að vera bjartsýn á að bóluefni komi fljótlega og það verði þá í raun einhvers konar lúxusverkefni að fást við að vera ekki lengur að horfa á allt árið 2021 sem mjög þungt ár heldur verði það ár viðspyrnunnar.
Fyrirsjáanleiki er mikilvægur og hann er góður og við höfum veitt hann þar sem við höfum getað. Það er ekki hægt að biðja um fyrirsjáanleika þegar ytri aðstæður sem við höfum enga stjórn á eru helstu áhrifaþættir í því hvaða ákvarðanir er hægt að taka. Við höfum líka reynt að veita einhvers konar skilyrtan fyrirsjáanleika, þ.e. segja skýrt við hvaða aðstæður hægt er að (Forseti hringir.) skipta um skoðun, breyta um ákvörðun og taka nýjar ákvarðanir. Ég get alveg tekið undir með Samtökum atvinnulífsins að það skipti máli að við séum með skýra sýn. (Forseti hringir.) Mér finnst við heilt yfir hafa verið með það.