151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

efnahagsaðgerðir og atvinnuleysi.

[10:44]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að viðspyrna verður mun erfiðari ef við höldum ekki á lífi fyrirtækjunum sem hafa átt undir högg að sækja, framlínufyrirtækjunum, m.a. í ferðaþjónustu, veitingabransanum, listalífinu. Þá verður viðspyrna erfiðari og ekki eins hröð ef við tökum ekki þessi stóru skref strax. Ég efast um að þær aðgerðir sem bornar eru fram — ég virði það og við í Viðreisn höfum stutt þessar aðgerðir, en við höfum sagt: Þær eru ekki nógu umfangsmiklar, það er ekki verið að taka nógu stór skref strax. Byggir þetta á því að stjórnarandstaðan ætli að fara í eitthvert yfirboð? Nei, við erum m.a. að horfa á það sem aðrar þjóðir eru að gera. Þær standa líka frammi fyrir þessari miklu óvissu en þær hafa þó sett fram sviðsmyndir. Það er það sem m.a. ferðaþjónustan er að kalla eftir. Í Fréttablaðinu í gær er sagt: Ef óvissunni um sóttvarnaaðgerðir verður m.a. ekki aflétt, meiri fyrirsjáanleiki ekki settur fram, munu ferðaþjónustufyrirtæki deyja hér unnvörpum. Þetta er haft eftir samtökum aðila í ferðaþjónustu. (Forseti hringir.)

Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Mun hann beita sér fyrir því að taka undir þessi sjónarmið Samtaka atvinnulífsins og innan ferðaþjónustunnar (Forseti hringir.) að reyna að auka þennan fyrirsjáanleika? Ég minni enn og aftur á að (Forseti hringir.) við erum með meira atvinnuleysi en flestar aðrar Evrópuþjóðir sem við viljum bera okkur saman við. (Forseti hringir.) Við verðum að taka okkur saman í andlitinu.

(Forseti (GBr): Forseti biður hv. þingmenn um að virða tímamörk.)