efnahagsaðgerðir og atvinnuleysi.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Fá ef nokkur lönd eru eins háð ferðaþjónustu og Ísland og hvar er atvinnuleysi helst að finna? Jú, það er í ferðaþjónustunni þannig að auðvitað helst það í hendur að við séum með mikið atvinnuleysi þegar sú atvinnugrein sem við erum háðust af öllum löndum hrynur og lamast. Þá er það starfsfólkið í þeim geira sem missir atvinnu tímabundið.
Hér er talað um að úrræðin hafi ekki verið nógu mikil. Ég ætla ekki fara að þylja þau öll upp en hlutabótaleiðin, styrkur til uppsagna, lokunarstyrkir, tekjufallsstyrkir, viðspyrnustyrkir, frestun á staðgreiðslu og frekari innspýting eru dæmi um aðgerðir sem við höfum farið í sem hafa skipt mjög miklu máli. Ekki veit ég hver þessi stóru skref eru sem Viðreisn er að kalla eftir. Stjórnvöld ein og sér munu auðvitað ekki bjarga íslensku atvinnulífi í gegnum faraldurinn og eftirköst hans. Fyrirtæki munu þurfa að fara í heilmikla endurskipulagningu, t.d. leika bankar þar lykilhlutverk, hvernig þeir hjálpa viðskiptavinum sínum að komast í gegnum það á þeim forsendum sem þeim er heimilt að gera. Við munum veita ferðaþjónustunni (Forseti hringir.) meiri fyrirsjáanleika. Ég hef ekki áhyggjur af því að við munum ekki geta staðið við það sem við höfum áður sagt við ferðaþjónustuna og það sem ferðaþjónustan kallaði eftir í gær, á nýju ári munum við geta sagt (Forseti hringir.) hvernig fyrirkomulagið verður á landamærunum.