endurskoðun skaðabótalaga og bótasjóðir tryggingafélaganna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og það er rétt, sem hv. þingmaður segir, það þarf að endurskoða skaðabótalögin. Sú vinna hefur staðið yfir í talsverðan tíma. Hún hefur kannski ekki náð að vinnast jafn hratt og vonir stóðu til en frumvarp var lagt fram á Alþingi sem náðist ekki að klára um þessa endurskoðun. Þá voru lagðar til breytingar sem vörðuðu alla þessa þætti sem hv. þingmaður kemur inn á, sem voru um margfeldisstuðulinn, um þessi tekjuviðmið, um fjárhæð á frádráttarreglum og öllu þessu. Það stóð síðan til að endurskoða þetta í áföngum og hefur kannski ekki verið klárað að taka til endurskoðunar framkvæmd á örorkumatinu til að mynda og af því hefur ekki orðið vegna ýmissa hluta. Það er hins vegar ljóst að það er löngu tímabært að taka það ferli allt til endurskoðunar, örorkumatsferlið. Ég tek bara undir það með hv. þingmanni.
Það er erfitt að sjá hvernig ráðherra á sjálfur að hafa áhrif á hvað örorkunefnd, sem er nefnd sérfræðinga, leggur til grundvallar í örorkutöflunum. Efnislega er hæpið að ráðherra fari sjálfur inn í það mat. Það breytir því ekki að þörf er á endurskoðun laganna og þörf á að breyta öllu þessu mati. Hvað varðar síðan lagastoðina fyrir þessum miskabótatöflum, sem er oft komið inn á, þá segir auðvitað í skaðabótalögunum að örorkunefnd semji þessa töflu og það er auðvitað ansi skýr lagaheimild. Nefndin hefur aukið og endurbætt töflurnar talsvert frá árinu 2006 og tekið tillit til þeirra breytinga sem hafa orðið í nágrannalöndum okkar síðan. En það er verk fyrir höndum og það mun halda áfram (Forseti hringir.) þó að ég viti ekki hvort slíkt frumvarp muni koma fram á þessu þingi.