151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

endurskoðun skaðabótalaga og bótasjóðir tryggingafélaganna.

[11:00]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég held að alger endurskoðun á skaðabótalögunum þar sem þessar tölur yrðu uppfærðar þurfi að koma í skrefum og að við tökum í skrefum öll þessi atriði sem þarf að laga. Fyrsta frumvarpið sem kom hér fram og fór ekki í gegn var fyrsta skrefið. Síðan áttu næstu skref í endurskoðuninni að fylgja, þar sem átti að taka þetta í áföngum. Hvað varðar uppgjör bótasjóðanna er það auðvitað vátryggingastarfsemi og kannski ekki á minni hendi sem dómsmálaráðherra. En ég er öll af vilja gerð að endurskoða skaðabótalögin og veit að þörf er á slíkri endurskoðun.