málefni framhaldsskólans.
Virðulegur forseti. Við höfum verið að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja sem mest staðnám og koma til móts við þessar ótrúlegu aðstæður. Ég fór aðeins yfir það hvernig við erum að styðja við stoðþjónustu. Ég ætla líka að nefna nokkra þætti í því hvernig við erum að fara í gegnum þessa önn. Það er verið að taka tillit til þess í námsmatinu, m.a. með því að það er sveigjanlegra en ella. Hv. þingmaður vitnaði í orð eins rektors eða skólameistara, gef ég mér, þar sem viðkomandi aðilar voru að fara yfir hvernig þessi önn hefur komið út. Ég held að það sé ofboðslega brýnt að meta aðstæður þegar við fáum þær niðurstöður í hús. Til að mynda á vormisseri bjuggust mjög margir við að brotthvarf yrði meira. Það var ekki raunin. Það bjuggust mjög margir við að einkunnir yrðu lægri. Það var ekki raunin. Það sem við erum að fara í núna, og ég er alveg sannfærð um að hv. þingmaður er algerlega sammála mér í því, er að það séu ákveðnar undanþágur, (Forseti hringir.) að sömu undanþágur gildi varðandi framhaldsskólastigið og unglingastigið. (Forseti hringir.) Og ég vil líka upplýsa hv. þingmann um það að ég hef svo sannarlega barist fyrir því að tryggja staðnám.